Tottenham fáninn fékk góðan blástur í Grafarvogi eftir að félagið hélt sér uppi
Fáni enska knattspyrnufélagsins Tottenham Hotspur fékk góðan blástur í Grafarvogi í vikunni þegar fánaáhugamaðurinn Ólafur Sverrisson verkfræðingur flaggaði honum.
Þetta fornfræga enska félag lenti í miklum ógöngum í vetur og rétt náði að halda sér uppi í efstu deild.
Úrslitin réðust í síðasta leik tímabilsins um síðustu helgi þegar liðið fékk Everton til sín í heimsókn.
Spurs þurti á einu stigi að halda í leiknum en vann hann eitt-núll og það dugði til að forðast fall. Fallbaráttan undir það síðasta var við annað þekkt Lundúnalið, West Ham, sem þurfti að bíta í eplið súra.
West Ham var um tíma í eigu Íslendinga þar sem Björgólfur Guðmundsson og Eggert Magnússon létu mjög til sín taka við stjórnun félagsins.
Bæði þessi ham-lið, Tottenham og West Ham, eiga fjölda stuðningsmanna hér á landi.
Spurs-fáninn í miklum blæstri í Grafarvogi sem veit hugsanlega á góðan byr í seglin á næsta tímabili. - JGH

Góður blástur og einn snúningur kominn á Spurs-fánann í Grafarvogi.
Góður blástur og veit hugsanlega á góðan byr á næsta tímabili.


