Snöggur var hann. Gamlingi í gönguferð fær hugljómun yfir tækni trukksins

29. maí 2026

Það ber margt fyrir augu í góðri gönguferð. Ekki er ég nú mikill tæknikarl en þessi trukkur ók framhjá mér og bílstjóri hans tók skyndilega að bakka að opnum gám sem hefur verið þarna í götunni að undanförnu.


Mun víst heita krókagámur á fagmáli.


Bílstjórinn var snöggur að þessu. Það tók hann ekki nema tæpa mínútu að kippa gámnum upp og það fannst mér vel gert. Svo rauk hann af stað.


Það er þetta með tæknina og gamlingja í gönguferð.


Það þarf svo sem ekki mikið til að þeir staldri við og taki til að við að góna á vörubíla líkt og í barnæsku - og fái hugljómun yfir svona snjallræði.


- Þeir voru ekki svona snöggir í gömlu, góðu, hugsaði ég með mér.


- Eðlilega ekki, þessi tækni var ekki komin þá. - JGH

Snöggur var hann. Þetta var ekki svona í þá gömlu góðu.

Gamlingi heillast af tækninni.