Úlfarsfellið er fagurt og frítt, 296 metra hátt og vinsælt meðal göngumanna

4. september 2026

Þótt Esjan sé auðvitað hið eiginlega borgarfjall þá blasir Úlfarsfellið við okkur Grafarvogsbúum á hverjum degi - svo ekki sé nú talað um þá borgarbúa sem búa í Úlfarsárdal.


Úlfarsfellið er vinsælt meðal göngumanna ekkert síður en Esjan og oft má sjá fjölda fólks ganga á Úlfarsfellið í góðu veðri enda er fjallið lægra en Esjan og minna mál og styttri tími „að skjótast“ upp á toppinn.


Sumir hafa göngu á Úlfarsfellið sem sína morgungöngu.


Það er 296 metra hátt á meðan Esjan er um þrisvar sinnum hærri.


Á toppi fjallsins má sjá sjónvarps- og útvarpssenda fyrir Reykjavíkursvæðið en möstrin og sendarnir á Vatnsenda önnuðust áður það hlutverk.


Úlfarsfell er nefnt í Hítardalsbók frá 1367 og í jarðabók þeirra Árna Magnússonar og Páls Vídalíns frá 1704.


Líkt og fjallið þá draga Úlfarsáin og Úlfarsárdalurinn nafn sitt til sama landnámsmanns, Úlfars, þótt ekki kunnum við frekari deili á honum. - JGH

Úlfarsfell er vinsælt á meðal göngumanna. Þrjár eða fjórar gönguleiðir eru upp á fjallið - og sumir hafa göngu á fjallið sem sína morgungöngu. Á fjallinu er mastur fyrir sjónvarps- og útvarssenda.