Horft til Grafarvogs frá Sóltorgi
Það er stundum sagt að höfuðborgarsvæðið sé stærsti skógur á Íslandi því trjágróður er mikill í borginni - og ekki síst í hverfinu okkar, Grafarvogi.
Til er orðalagið að Sjá ekki skóginn fyrir trjánum.
Það á ekki við í þetta skiptið því skógurinn í Grafarvogi sést vel fyrir trjánum við göngustíginn í Grafarholti - sem liggur niður frá Sóltorginu.
Annars merkir orðalagið að Sjá ekki skóginn fyrir trjánum það þegar manneskja sér ekki aðalatriði málsins því hún rýnir svo mikið í smáatriðin.
Það er svo sem auðvelt að tínast í smáatriðum.
Það á við um okkur öll - ekki satt?
Er það nokkuð stóratriði? - JGH

Það er eitt og eitt tré í hverfinu okkar. Horft til Grafarvogs frá Sóltorgi í Grafarholti.

Keldnalandið. Það er stundum sagt að grasið sé grænna hinum megin við lækinn. Það á ekki við hér því Grafarlækurinn sem rennur í Grafarvog er mun sunnar en sést á þessari mynd.

Horft upp til Húsahverfis frá Sóltorgi.

