Einstakir tónleikar til minningar um þau heiðurshjón séra Vigfús Þór og Elínu
Grafarvogskirkja efnir til stórtónleika fimmtudaginn 24. september til minningar um þau heiðurshjón séra Vigfús Þór Árnason og Elínu Pálsdóttur en þau létust bæði á síðasta ári með aðeins sex mánaða millibili.
Þjóðþekktir listamenn koma fram á tónleikunum, eða þau Diddú, Gissur Páll, Jóhann Friðgeir, Matti Matt, Kór Grafarvogskirkju, Vox Populi og Frímúrarakórinn.
Það væri nú vel til fundið kæru Grafarvogsbúar að troðfylla kirkjuna í tilefni þessara minningartónleika en þau hjón byggðu upp söfnuðinn af mikilli eljusemi ásamt auðvitað mörgum öðrum.
Séra Vigfús Þór lést á líknardeild Landspítalans 27. febrúar á síðasta ári og Elín aðeins um sex mánuðum síðar, eða 9. ágúst. Hún var þá nýbúin að koma sér fyrir í nýrri íbúð í Garðabænum.
Allur ágóði af þessum tónleikunum rennur í orgelsjóð kirkjunnar en miðaverð er 5.500 kr.
Undirritaður var í sóknarnefnd Grafarvogskirkju í um tíu ár og kynntist eðlilega þeim hjónum vel.
Vinna þeirra við að ryðja brautina og byggja upp söfnuðinn verður ætíð samofin sögu safnaðarins.
Blessuð sé minning þeirra. - JGH

Mikill fjöldi var við útför séra Vigfúsar Þórs Árnasonar hinn 13. mars í fyrra.

Og ekki var fjöldinn minni við útför Elínar Pálsdóttur hinn 29. ágúst í fyrra.

Logandi kerti og mynd af séra Vigfúsi Þór við anddyri kirkjunnar við útför hans.

Glaðsinna var Elín Pálsdóttir svo sannarlega og fáum á söfnuðurinn eins mikið að þakka og henni.

Þjóðþekktir listamenn koma fram á tónleikunum, eða þau Diddú, Gissur Páll, Jóhann Friðgeir, Matti Matt, Kór Grafarvogskirkju, Vox Populi og Frímúrarakórinn.


