Þú tryggir ekki eftir á - Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá, gestur okkar í Hluthafaspjallinu

1. apríl 2026

Hann er að venju stútfullur af efni nýjasti þáttur okkar félaganna Sigurðar Más Jónssonar í Hluthafaspjalli ritstjóranna sem sýndur er á efnisveitunni Brotkast.is og er hér að finna í opinni dagskrá. Við tókum þáttinn um sl. föstudag og fengum góðan gest til okkar, Hermann Björnsson, forstjóra Sjóvá.


Jafna byrjum við félagarnir bara tveir og förum yfir það helsta sem er að gerast í Kauphöllinni hverju sinni. Úrvalsvísitalan hefur gefið töluvert eftir undanfarnar vikur og kemur þar margt til; verðbólgan er að fara úr böndum, stýrivextir hafa verið hækkaðir og bjartsýni stjórnenda hefur minnkað með hækkunum skatta og ýmissa gjalda hjá opinberum fyrirtækjum. Við félagarnir ræddum sérstaklega Alvotech og stöðuna þar á bæ en Viðskiptablaðið er með mjög athyglisverða úttekt á fyrirtækinu og viðtal við Róbert Wessman, stjórnarformann þess.


Það muna margir eftir slagorði Sjóvá sem sló í gegn fyrir nokkru síðan - Þú tryggir ekki eftir á. Við ræðum m.a. þetta fína slagorð við Hermann en komið er mjög víða við í samtalinu við hann:


  1. Hver er galdurinn á bak við áranguri fyrirtækisins í Íslensku ánægjuvoginni?
  2. Slagorðið fræga - Þú tryggir ekki eftir á!
  3. Hvernig er tjónauppgjörum háttað hjá fyrirtækinu?
  4. Hvernig er að keppa við ríkis-tryggingafélag?
  5. Hver er fjárfestingarstefna félagsins?
  6. Sjóvá núna og fyrir 15 árum þegar Hermann varð forstjóri?
  7. Tryggingasvik að verða tíðari.
  8. Betri forvarnir í bílum - en tæknin í bílum kostar.
  9. Færri tjón bíla en hvert tjórn mun dýrara?
  10. Tengslin við viðskiptavinina.
  11. Hversu vel eru Íslendingar tryggðir?
  12. Erlendir ferðamenn á bílaleigubílum?
  13. Er viðhaldslítið vegakerfi farið að segja til sín?
  14. Hvað getum við lært af Dönum í tryggingum og bótamálum?


Líflegt spjall og mjög fróðlegt en Hermann mikill reynslubolti á tryggingasviðinu. - JGH

Létt að venju yfir mönnum í Hluthafasjalli ritstjóranna en gestur okkar Sigurðar Más að þessu sinni er Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvá.