Mjög fjölbreytt dagskrá í kirkjunni - fermingar, heilög kvöldmáltíð, helgistund við krossinn og páskamessan kl. 8 að morgni páskadags

1. apríl 2026

Það er vert að vekja athygli á mjög fjölbreyttri dagskrá í Grafarvogskirkju núna í dymbilvikunni og um páskana. 


Má þar nefna fermingar, heilaga kvöldmáltíð, helgistund við krossinn og söng kórsins á lögum úr söngleiknum Jesus Christ Superstar. Hátíðarmessan verður svo kl. 8:00 að morgni á páskadag, eftir það páskamessa á Eir og Selmessa með upprisuívafi í Borgum kl. 13:00 á páskadag.


Fermingarmessurnar á morgun , skírdag, eru kl. 11:00 og 13:30 en sóknin okkar í Grafarvogi er sú stærsta á landinu og fjölmörg börn sem fermast í kirkjunni á ári hverju.


Annað kvöld verður svo heilög kvöldmáltíð í kirkjunni og hún hefst kl. 20:00. 


Á föstudaginn langa verður helgistund við krossinn og þá mun kórinn syngja valda kafla úr söngleiknum Jesus Christ Superstar.


Páskamessan verður svo að venju kl. 8:00 að morgni en hún hefur jafnan verið vel sótt.


Helgir dagar framundan og starfið í okkar fallegu kirkju fjölbreytt og til fyrirmyndar. - JGH 

Grafarvogssókn er stærsta sókn landsins og þau eru fjölmörg börnin í Grafarvogi sem krjúpa við altarið og fermast í ár - líkt og jafnan áður.

Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogi.