Sjómennskan beint í æð - kraftmikil og tignarleg sýn við Miðbakkann. Bláir Brimarar

1. apríl 2026

Stundum er það svo að maður fær atvinnulífið beint í fangið - svo um munar. Þannig var það þegar farið var um Geirsgötuna eftir hádegi í gær. Þarna blasti sjómennskan og útvegurinn við í allri sinni dýrð.


Tignarleg og kraftmikil sýn á Miðbakkanum við Reykjavíkurhöfn; bláir Brimarar.


Brimarar? Jú, þessir fallegu togarar eru í flota Brims; Venus og Víkingur, og voru í höfn.


Vörumerki Brims eru fallegar hvítar öldur sem liðast um á bláum grunni.


Liturinn fer þessum skipum vel. Falleg fley; bláir Brimarar. - JGH

Miðbakkinn við Reykjavíkurhöfn. Sjómennskan beint í æð.

Falleg fley, Víkingur og Venus, og eru í eigu Brims.

Tignarleg og kraftmikil sýn; bláir Brimarar.