Tveir skáksnillingar í Fjölni fá styrk úr afrekssjóði! Glæsilegt og til hamingju

6. febrúar 2026

Til hamingju Héðinn Steingrímsson og Dagur Ragnarsson - og þið öll í skákdeild Fjölnis. En tveir skákmenn í Skákdeild Fjölnis, stórmeistarinn Héðinn Steingrímsson og alþjóðlegi skákmeistarinn Dagur Ragnarsson, eru í hópi 13 íslenskra skákmanna sem fá styrk úr afrekssjóði í skák 2006. Þeir eru svo sannarlega vel að þessu komnir. Glæsilegt!


Við úthlutun var meðal annars horft til árangurs og virkni árið 2025 og áætlun um virkni í skák fyrir árið 2026. Héðinn fær 9 mánaða úthlutun en Dagur til 3. mánaða. 


Héðinn Steingrímsson hefur teflt með Skákdeild Fjölnis frá árinu 2007 og oftar en ekki á 1. borði.


Dagur er uppalinn Fjölnismaður og var kjörinn skákkarl Fjölnis tvö síðustu ár, 2024 og 2025. Árið 2024 var hann einnig valinn Íþróttamaður Fjölnis. 


Þeir Héðinn og Dagur hafa báðir teflt í A-sveit Fjölnis, Íslandsmeistara skákfélaga 2024 og 2026. 


Þess má geta að Dagur hóf árið 2026 með öruggum sigri á Skákþingi Reykjavíkur, sem er nýlokið, og hlaut með sigrinum titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2026. 

Héðinn Steingrímsson hefur teflt með Skákdeild Fjölnis frá árinu 2007 og oftar en ekki á 1. borði.

Dagur Ragnarsson er uppalinn Fjölnismaður og var kjörinn skákkarl Fjölnis tvö síðustu ár, 2024 og 2025. Árið 2024 var hann einnig valinn Íþróttamaður Fjölnis.