Ekki er öll vitleysan eins. Hver stelur veðurstöð í Geldinganesi?

4. febrúar 2026
Ekki er öll vitleysan eins. Hver stelur veðurstöð í Geldinganesi? Hlynur Sigurgíslason í Kæjaklúbbnum á Geldinganeseiði skrifar inn á FB-síðu klúbbsins að veðurstöðin á Geldinganesi sé horfin af vedur.is. 

„Ég hafði samband við veðurstofuna til að vita hvort hún hefði verið lögð niður og kemur þá í ljós að henni hefur verið stolið!,“ skrifar Hlynur.
 
Og Hlynur bætir við: „Góðu fréttirnar eru þær að það á að setja upp nýja stöð, en það er þó ekki fremst á forgangslistanum. Vonandi gerist það sem fyrst því þessi veðurstöð er mikilvægt öryggistæki fyrir kayakklúbbinn.“

Frá Geldinganeseiði þar sem vegur liggur út í Geldinganes en þetta er vinsæl gönguleið. Einhverjir sem áttu leið um stálu hins vegar veðurstöðinni í Geldinganesi.