Hvað ætlar borgin að gera við húsnæði Ársólar? Hvernig verða leikskólamálin leyst?

7. febrúar 2026

Grafarvogur.net gerði sér ferð að leikskólanum Ársól í Húsahverfi í dag en margir íbúar velta því fyrir sér hvað verði gert við þetta húsnæðí sem er í eigu Reykjavíkurborgar. Einkafyrirtækið Skólar ehf. hefur rekið þarna leikskóla fyrir 54 börn á aldrinum níu mánaða til þriggja ára í húsnæðínu. Mygla fannst í því á síðasta ári og var starfsemi skólans þá flutt tímabundið annað. Borgin rifti svo leigusamningnum við Skóla ehf. hinn 1. janúar sl. á þeim forsendum að húsnæðið henti ekki lengur undir starfsemina og metur borgina það svo að það sé of illa farið og ónothæft. Engu að síður hefur verið ráðist í talverðar framkvæmdir við húsið og parket og fleiri innanstokksmunir rifnir úr húsnum og settir í gám fyrir utan sem er opinn með öllu draslinu í.


Vísir var með frétt um það um miðjan janúar sl. að samkvæmt bréfi sem stjórnarformaður Skóla ehf sendi foreldrum barna á leikskólanum sagði Reykjavíkurborg upp leigusamningi vegna leikskólans sem er við Völundarhús  1 í byrjun janúar með sex mánaða fyrirvara. Þá sagði mbl.is frá því í byrjun apríl á síðasta ári að vandræði væru í skólanum vegna myglu og starfsfólk treysti sér ekki til að mæta til vinnu.


Fram kom í frétt Vísis í janúar sl. að foreldrar barna á leikskólanum hefðu miklar áhyggjur og væru í hálfgerðu áfalli enda ekki alveg ljóst hvernig leikskólamálin verða leyst - enda ekki hlaupið að því að fá nýtt leikskólapláss. Mikil ánægja hefur ríkt með starfsemi Skóla ehf. í Ársól.


Starfsemi leikskólans hefur verið rekin í öðru húsnæði í hverfinu undanfarna mánuði. Það húsnæði, við Húsaskóla, mun hins vegar ekki heldur standa leikskólanum til boða frá og með 30. júní næstkomandi.


Þegar Grafarvogur.net var þarna á ferð í dag vakti stór gámur fyrir utan leikskólann athygli en hann var fullur af parketi, timbri og öðrum innanstokksmunum úr skólanum. Borgin hefur augljóslega ráðist í töluverða vinnu til að rífa innan úr húsunum til að fjarlægja mygluna. 


Gámurinn er opinn og mætti borgin láta fjarlægja hann fyrr en seinna - svona líka í ljósi þess hvers eðlis innvolsið er. - JGH 

Mikil ánægja hefur verið með starfsemi leikskólans sem Skólar ehf. hafa rekið. Leikskólanum var lokað á síðasta ári vegna myglu og fengu börnin inni tímabundið í húsnæði við Húsaskóla sem ekki verður á lausu frá og miðju sumri.

Að sögn íbúa sem Grafarvogur.net ræddi við hefur enginn sést þarna í nokkrar vikur og umgengnin, þ.e. draslið á lóðinni, vekur athygli. 

Umgengnin sem vekur athygli. Þessi gámur er fyrir utan leikskólann og borgin hefur augljóslega lagt vinnu í fjarlægja parket og ýmsa innanstokksmuni úr skólanum vegna myglunnar. Þennan gám mætti nú fjarlægja fyrr en seinna - ekki síst í ljósi þess hvers eðlis innvolsið er.

Þessa mynd fékk Grafarvogur.net senda frá íbúa í hverfinu sem segir að nokkuð sé um liðið síðan einhver sást þarna við vinnu. En hvað með þennan frágang á þakinu?

Þessa mynd fengum við sömuleiðis frá íbúa sem prílaði upp á þakið til að sjá hvernig umhorfs væri þar. Auðvitað þarf að klára svona verk þegar menn eru byrjaðir á því á annað borð. Svona frágangur er ekki til fyrirmyndar.

Hvernig væri nú að koma þessum gámi í burt við fyrsta tækifæri!?

Hliðinu hefur verið endanlega lokað fyrir þau 54 börn sem voru í ungbarnaleikskólanum. Þetta er nokkuð stór leikskóli. Fimm álmur og gott útisvæði.