Turnarnir tveir fengu óvænt sólarglætu í nokkrar mínútur klukkan sjö að morgni
Þeir lentu í kastljósi þeirrar gulu í nokkrar mínútur í morgun. Klukkan að verða sjö að morgni og kaffibollinn kominn í hendi þegar geislar morgunsólarinnar lentu á turnunum tveimur við Sævarhöfðann.
Það var ekki annað að gera en leggja bollann frá sér og mynda út um stofugluggann.
Þetta eru gamlir sementsturnar; raunar sementssíló eins og þeir voru nefndir hér í den.
Það var svo sem ekki útlit fyrir morgunsól. Skýjað meira og minna yfir borginni og eitthvað hafði verið rætt um nokkra rigningardropa með morgninum.
En svo gerðist það; Bryggjuhverfið, Höfðinn og turnarnir tveir fengu smá glætu í nokkrar mínútur.
Svo var dimmerinn tekinn á þetta og sólin hvarf jafnskjótt og hún braust fram.
En svo birtist hún aftur brosandi um tíma síðdegis.
Gul og glöð; að venju. - JGH

Turnarnir tveir. Þeir eru ekki beint bæjarprýði en eru í skipulaginu og einhverju sinni var nefnt að byggja veitingahús ofan á þá.

Bryggjuhverfið og Höfðinn fengu óvænt glætu í nokkrar mínútur rétt fyrir sjö í morgun á meðan morgunsólin lét önnur hverfi vera.

Borgarhöfðinn verður engin smá byggð. 20 þús. íbúar - 8 þús. heimili. Turnarnir tveir eru lengst til vinstri á þessari mynd.

Hér má sjá hvernig Borgarhöfðinn mun breiða úr sér að Elliðaánum og þar sem Sorpa var áður með stöð við Sævarhöfðann. Turnarnir tveir á sínum stað og ennþá inni í myndinni.

