Nýjar merkingar á brúnni við Höfðabakka valda ruglingi og stuðla að aukinni hættu

5. september 2026

Við á Grafarvogi.net höfum fengið fjölda ábendinga að undanförnu um að nýjar merkingar á Höfðabakkabrúnni valdi usla og stuðli að aukinni hættu í umferðinni.


Þetta er beygjuakreinin á brúnni þegar tekin er vinstri beygja inná Höfðabakkann á leið niður í Grafarvoginn.


Nýju merkingarnar - punktalínurnar í götunni - eru þannig að umferð á hægri akreininni er beint inn á miðjuna á Höfðabakkanum en sú til vinstri inn á beygjuakreinina inn á Bíldshöfðann.


Fólk spyr eðlilega hvort ekki hefði verið nær að hafa merkingarnar þannig að hægri akreinin færi inn á þá sem er lengst til hægri á Höfðabakkanum og sú vinstri lægi inn á miðakreinina.


Þetta eru þarfar ábendingar!


Við mættum á svæðið í dag og mynduðum.


Við erum sammála. Þetta eru ekki hreinar línur!


Þær valda ruglingi; það eru hreinar línur. - JGH

Grafarvogsbúar eru ekki sáttir við nýju merkingarnar á Höfðabakkabrúnni og telja að þær valdi slysahættu.

Umferðinni á vinstri akreininni er beint inn á beygjuakreinina inn á Bíldshöfða en ekki inn á miðakreinina á Höfðabakkanum.

Það eru hreinar línur að þær valda ruglingi.

Umferðinni á hægri akreininni er beint inn á miðjuna á Höfðabakkanum.

Þetta síðasta myndband er frá einum af þúsundum dyggra lesenda okkar.