„Þið verðið að eiga fleiri börn í Grafarvogi“
Skólamálin bara á góma á fundi borgarstjóra í bókasafninu í Spönginni í gær.
Þannig fékk Heiða Björg spurningu um það hvers vegna 1. til 10. bekkur væri ekki í öllum skólum innan allra hverfa í Grafarvogi. Bent var á að nokkrir skólar væru ekki fullsetnir - og var Hamraskóli nefndur sérstaklega í því tilfelli.
Það hefur verið hluti af rökum borgaryfirvalda fyrir þéttingu byggðar að innviðir, eins og skólar og leikskólar, séu ekki fullnýttir.
Heiða Björg borgarstjóri fékk Stein Jóhannsson, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, til að aðstoða sig og fór hann yfir skólamálin í Grafarvogi og í stuttu máli sagði hann að þau væru í góðu lagi - þrátt fyrir að einhverjir skólar væru ekki með bekki upp í tíunda bekk.
Einn ungur fundargestur bað þá um orðið og sagði að þegar hann liti yfir salinn og sæi aldur fundarmanna skýrði það talsvert fyrir sér hvers vegna allir skólar í Grafarvogi væru ekki fullsetnir.
Fundarmenn höfðu svo sem gaman af þessum ummælum þótt þeir segðu á móti að þeir væru ekki á sama máli og borgaryfirvöld varðandi innviðina.
„Þið verðið að eiga fleiri börn í Grafarvogi,“ sagði Heiða í léttum dúr og með bros á vör þegar hún lokaði þessu máli og bað um næstu spurningu. - JGH

Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, fór stuttlega yfir skólamálin í Grafarvogi þegar þau báru á góma á fundinum.

