Trausti spurði hvort girða ætti Spöngina af og búa til eins konar virki

19. október 2026

Við höldum áfram að segja fréttir af íbúafundinum með Heiðu Björg Hilmisdóttur, fyrrverandi borgarstjóra, á Bókasafninu í Grafarvogi hinn 10. febrúar sl. En fundarmönnum var mjög heitt í hamsi þegar umræðan barst að tillögum Reita, sem kynntar höfðu verið á heimasíðu félagsins, um Spöngina.


Einn fundarmanna, Trausti Harðarson, íbúi í Grafarvogi, lét mjög til sín taka á findinum um Spöngina og spurði Heiðu hvort girða ætti Spöngina af og búa til eins konar virki um hana, svo byltingarkenndar væru hugmyndir Reita.


Stóra málið á fundinum var samt það hvort verið væri að lauma inn fjölda nýrra íbúða í Grafarvoginn, bakdyramegin í gegnum Reiti, á sama tíma og meirihlutinn (fyrrv. meirihluti) segðist hættur við öll áform um þéttingu byggðar og ætlaði að láta málið í hendurnar á nýjum meirihluta sem yrði myndaður eftir kosningar.

Trausti Harðarson, íbúi í Grafarvogi, hér fyrir miðri mynd lét svo sannarlega til sín taka á fundinum og hjólaði í borgarstjóra varðandi stækkun Reita á Spönginni og það uppbyggingarsamkomulag sem borgin hefði gert við Reiti og Heiða hefði sjálf undiritað.

Á meðal þess sem Trausti sagði á fundinum var að vegakerfið í Grafarvogi - sem og aðrir innviðir, eins og skólar og leikskólar, þyldi ekki frekari þéttingu byggðar. Nefndi hann sérstaklega í því sambandi gatnamót Rimaflöt, Strandveg og Gufunesveg og sagði að breytingar þar væru afleitar.


Þá nefndi Trausti að búast mætt við að mikið álag yrði á vegakerfinu í Grafarvogi þegar byggðin í Gufunesi væri fullbyggð - hvað þá ef Geldinganesið bættist við - og svo ekki væri talað um mjög líklega umferð frá Blikastaðalandi og hinu risavaxna athafnasvæði á Korputúni. - JGH