Ólöf fékk orðið á fundinum í febrúar þegar kom að hugmyndum Reita
Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, fékk orðið á fundinum á Bókasafninu í febrúar og kom Heiðu borgarstjóra til aðstoðar varðandi umræðuna um Spöngina.
Og sagði samkvæmt frétt okkar á Grafarvogur.net af fundinum:
„Það er fasteignafélagið Reitir sem eiga Spöngina og hafa hug á því að bæta við hana og komu til máls um það við borgina og skrifað var undir viljayfirlýsingu; uppbyggingarsamkomulag. Það sem við gerum svo er að vinna og gera skipulagslýsingu að breytingu að ósk þeirra. Þessi skipulagslýsing fer í samráðsgátt. Svo hefst deiliskipulagið sem fer líka í samráðsgátt. Þetta verður ekki grenndarkynning heldur auglýst og hagaðilum sem búa næst Spönginni verður sent bréf. Þannig að þetta er bara fyrsta skrefið. Þetta er tillaga komin frá Reitum sem eru lóða- og fasteignaeigendur á svæðinu og okkur ber að taka ósk þeirra til stjórnsýslulegrar meðferðar,“ sagði Ólöf.
HAFIÐ ÞIÐ EKKERT LÆRT AF GRÆNA GÍMALDINU?
Fundargestur reis þá upp og sagði: „Hafið þið ekkert lært af Græna gímaldinu sem þið byggðuð í Breiðholti. Ég bý í blokk við Spöngina og við komum til með að missa allt sólarljós við þær tillögur sem hafa verið kynntar. Mér líst ekkert á þetta.“
Þá svaraði Ólöf: „Það er ekki rétt í þessu tilviki, það liggja ekki fyrir neinar endarlegar tillögur. Reitir eru með ósk um að byggja upp og svo gerum við skipulagslýsingu þar sem fram koma allar forsendur og síðan fer þetta í lögbundið samráð. Ég lofa þér því að þetta mun ekki fara fram hjá þér.“
- Það er búið að teikna þessar tillögur Reita! - greip þá fundargesturinn inn í „og kynna þær með teikningum.“
„Ég get ekki ábyrgst það sem Reitir gera. Auðvitað skoða Reitir tækifæri eins og öll önnur fasteignaþróunarfélög gera,“ bætti Ólöf við.
„Verður þetta samt ekki allt á forsendum þeirra,“ svaraði þá fyrirspyrjandi.
Þetta var kjarninn í umræðunni um Spöngina á fundinum og stækkun hennar. - JGH

Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, stendur hér við hlið Steins Jóhannssonar, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, og Þorsteins Gunnarssonar borgarritara á fundinum í febrúar.

