Skoðun: Afleit niðurstaða hjá Hildi að velja ESB-flokkinn Viðreisn og Framsókn

27. maí 2026

SKOÐUN

Því miður finnst mér það afleit niðurstaða hjá Hildi Björnsdóttur að velja ESB-flokkinn Viðreisn, sem hefur viðhaldið völdum Dags B. Eggertssonar og Samfylkingar undanfarin tvö kjörtímabil og myndað bandalag til að halda Sjálfstæðisflokknum frá völdum í borginni. Þá velur hún Einar Þorsteinsson sem hljóp beint í fangið á Degi B. eftir síðustu kosningar.


Þetta eru ekkert annað en vonbrigði fyrir okkur sem kusu Sjálfstæðisflokkinn í þeirri von að þeir flokkar sem hafa stýrt borginni undanfarin ár fengju verðuga hvíld. Þess í stað velur hún flokka sem hafa komið að stjórnun borgarinnar og tekið fullan þátt í þeirri óráðssíu og óstjórn sem hefur einkennt rekstur borgarinnar. Eru það réttu flokkarnir til að endurskipuleggja rekstur sem þeir sjálfir hafa siglt í óefni?


Heiðarleiki skiptir máli í pólitík og það hefði verið heiðarlegt af Hildi Björnsdóttur að segja það beint út fyrir kosningar að hún ætlaði ekki að starfa með Miðflokknum. Kjósendur verða að vita fyrir kosningar hvar þeir hafa frambjóðendur. Þess í stað sagði hún í kappræðum á Sýn að hún gæti vel hugsað sér að starfa með Miðflokknum - og raunar Viðreisn og  Framsókn líka ef þannig verkaðist. Nokkrum klukkustundum eftir að úrslit lágu fyrir og nýr, ferskur meirihluti án þeirra sem höfðu stjórnað borginni í meirihluta var borðleggjandi, var hins vegar komið annað hljóð í strokkinn og skyndilega veifaði Hildur einkennilegum og ómaklegum þöggunarsjónarmiðum. Þá þegar fóru að renna tvær grímur á marga. Var henni ekki treystandi eftir allt saman?


Og það að bjóða Ara Edwald formennsku í Orkuveitunni er sömuleiðis hrein móðgun og léleg snudda. Mér heyrist að hjá mörgum hafi leiðir skilið við Sjálfstæðisflokkinn í dag.


Slæmur dagur!   - Jón G. Hauksson