Torgið var fyrsta miðstöð verslunar í Grafarvogi. Hvaða verslanir hafa verið þar?

15. júlí 2026

Þegar við vorum að róta í myndasafninu okkar dúkkaði þar upp falleg mynd af Torginu í Grafarvogi - mynd sem var tekin á þessum tíma að kvöldlagi í júlí í fyrrasumar. (Aðeins minni rigning þá).


Þá rifjaðist það upp að Torgið er fyrsta miðstöð verslunar og þjónustu í Grafarvogi og er við Hverafold 1 til 5.


Það var byggt af hjónunum Gunnlaugi Guðmundssyni og Svanhildi Erla Jóhannesdóttur Levy sem ráku til að byrja með Gunnlaugsbúð í litlum skúr, nánast í lítilli skonsu, á lóðinni við Hverafold þegar Grafarvogurinn byggðist hratt upp á níunda tug síðustu aldar.


En þau tóku skrefið og byggðu upp Torgið. Þar ráku þau Gunnlaugsbúð í kjallaranum, söluturninn Foldaskálann og Sportbúð Grafarvogs.


Þau hjón voru afar samheldin í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur og seldu Torgið þegar aldurinn færðist yfir þau.


Við frumbyggjarnir í Grafarvogi munum vel eftir því þegar Torgið var opnað í kringum 1990 en síðan hefur heldur betur margt breyst á þeim bænum.


En þá vaknar spurningin: Hvaða verslanir og þjónusta hafa verið í Torginu frá upphafi?


Hvers vegna ekki að bregða á leik með það á Facebook og fá aðstoð lesenda við að fylla upp í myndina og finna svörin?


Já, hvers vegna ekki smá fróðleik um verslunarsögu Grafarvogs?  - JGH

Við bregðum hér á leik og spyrjum hvort lesendur viti hvaða verslanir og þjónusta hafa verið í Torginu frá upphafi?

Allt byrjaði þetta með lítilli matvöruverslun í litlum skúr - Gunnlaugsbúð.