Fagur morgunn við voginn okkar fallega. Engum líkur þegar hann er upp á sitt besta
16. júlí 2026
Það var ekkert annað að gera en að stöðva bílinn og fara í útskot Strætó við Gullinbrú og mynda voginn okkar fallega upp úr klukkan átta í morgun.
Fallegur var hann og á fáa sér líka þegar hann er upp á sitt besta.
Blankalogn.
Morgunstund gefur gull í mund. - JGH

Rjómablíða við voginn fallega.

Kirkjan á fallegum stað og horfir til himins.

Það var allt í lagi að nýta útskot Strætó við Gullinbrú í nokkrar mínútur til að mynda.


