Sá enski vatt upp á sig en sá argentínski var á fullum blæstri. Var þetta fyrirboði?

15. júlí 2026

Þegar við mynduðum HM-fánana hjá Ólafi Sverrissyni verkfræðingi í Hamrahverfinu í Grafarvogi fyrir leikinn í kvöld mátti sjá að einn snúningur var kominn á enska fánann - hann hafði undið upp á sig - meðan sá argentínski var á fullum blæstri.


Fyrir hina hjátrúarfullu gat vissulega eitthvað falist í þessu? Var þetta fyrirboði um það sem koma skyldi í leiknum? Sá enski ekki á fullum blæstri.


Það reyndist vera þegar líða tók á leikinn.


Enskir skoruðu fyrsta markið á 55 mínútu en gerðu þau mistök að ætla að hanga á þessu marki gegn mjög viljugum og kröftugum Argentínumönnum sem færðust allir í aukana og sóknirnar dundu á þeim ensku.


Þegar líða tók að lok leiksins fóru vandamál enskra í vörninni að vinda verulega upp á sig og baráttuglaðir Argentínumenn skoruðu á 85 mín. og aftur í uppbótartíma, á 92. mín.


Um þennan leik verður margt skrifað af hálfu spekinga.


Fyrir okkur áhugamenn um boltann vaknar sú spurning hvers vegna ensku kantmennirnir Eberechi Eze og Bukayo Saka voru ekki settir inn á fljótlega eftir að Englendingar skoruðu markið til að hressa upp á sóknarleik enskra.


Englendingar spila við Frakka nk. laugardag um bronsið og sjálfur úrslitaleikurinn verður svo á sunnudag í New York á milli Spánverja og Argentínumanna.


Þar mætast stálinn stinn og sérlega leiknir knattspyrnumenn.


Fánar þessara þjóða fara upp í Grafarvogi á sunnudaginn.


Veislunni er að ljúka. - JGH

Í Grafarvogi fyrir leikinn. Sá enski með einn snúning um stöngina meðan sá argentínski var á fullum blæstri.

Spánverjar unnu Frakka og spila við Argentínumenn um heimsmeistaratitilinn í knattspyrnu 2026.

Argentínumenn urðu ekki undir í leikslok heldur lönduðu sigri.