Tíu dagar í kosningarnar: Lúmskt skot hjá Björgu? Hvers vegna var hún ekki spurð út í hvaða flokk hún ætti við?
BORGARSTJÓRNARKOSNINGAR. Niðurtalningin er hafin. Núna eru tíu dagar í sveitarstjórnarkosningar og baráttan er svo sannarlega að harðna og yfirlýsingar oddvita flokkanna að þyngjast. Í Reykjavík er stóra spurningin núna hverjir geta unnið saman eftir kosningar og hvort stunduð sé útilokunarpólitík.
Grafarvogur.net var með fréttaskýringu í gær um nýja skoðanakönnun Gallup sem RÚV birti og sýnir að Viðreisn er í lykilstöðu við myndun nýs meirihluta því samkvæmt könnuninni fengju Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur 11 fulltrúa kjörna af 23 og vantar einn upp á að ná meirihlutanum. Viðreisn fengi 2 fulltrúa kjörna skv. könnuninni. Viðreisn hefur í síðustu tvennum kosningum hallað sér að Samfylkingu og tryggt Degi B. Eggertssyni borgarstjórastólinn.
Í fréttum Sýnar í gærkvöldi og síðan í frétt á Vísi var rætt við þau Ara Eðvald, oddvita Miðflokksins, og Björgu Magnúsdóttur, oddvita Viðreisnar.
Einna mesta athygli vakti í þessum viðtölum við oddvitana að Vísir fylgdi ekki eftir spurningu til Bjargar þegar hún var spurð um í hvaða málum Viðreisn myndi ekki gefa afslátt af í meirihlutaviðræðunum að þá nefndi hún sérstaklega mannréttindi, fjölbreytileika og stuðning við hinsegin samfélagið.
„Það væri mjög erfitt fyrir Viðreisn að semja við flokk sem styður ekki hinsegin samfélagið í Reykjavík og fjölbreytileikann og mannréttindi fólks. Það er okkur mjög mikilvægt og þetta er bara eitt af leiðarstefunum í okkar flokki,“ sagði Björg en í máli hennar kom jafnframt fram að Viðreisn stundaði ekki útilokunarpólitík.
En hvað átti hún við? Hvers vegna fylgdi Vísir ekki spurningunni eftir og spurði um hvaða flokk eða flokka hún ætti eiginlega við því þarna er ansi mikið fullyrt og svarið ekki augljóst?

Könnun Gallup frá í fyrradag. Meirihlutinn í Reykjavík heldur velli halli Viðreisn sér að Samfylkingu líkt og í síðustu tvennum kosningum og semji við Samfylkingu, Vinstrið og Sósíalistaflokkinn.
Lúmskt skot eða hvað? Það má túlka það svo. Ekki fer á milli mála að margir túlkuðu þessi orð Bjargar sem svo að hún ætti við Miðflokkinn en undanfarna mánuði hefur verið hamast á varaformanni flokksins, Snorra Mássyni, og hann vændur um andstöðu við fjölbreytileika og hinsegin-samfélagið sem hann hefur afdráttarlaust borið af sér og sagt hreinar pólitískar árásir.
En átti Björg við Miðflokkinn? Hvers vegna var hún ekki spurð beint út um það?
PÉTUR OG HEIÐA EKKI LÍKLEGAST DÚÓIÐ TIL AÐ VINNA MEÐ
En með hverjum vill Björg þá vinna sem oddviti flokks í lykilstöðu eftir kosningar, skv. könnun Gallup?
„En ef maður lítur aðeins yfir sviðið og horfir til vinstri. Þar er meirihluti sem hefur fallið oftar en einu sinni í kosningum og Pétur og Heiða eru kannski ekki svona líklegasta dúóið til að vinna með ef þú vilt knýja fram stórar breytingar. Og svo er það kannski hægra megin og þar er fólk sem vill rífa samgöngusáttmálann upp með rótum og byrja frá grunni, sem þýðir margra ára bið í viðbót. Þannig að þetta er ekkert endilega augljóst í hvaða átt skal halda,“ svaraði Björg.
ARI: SÉ OKKUR EKKI VINNA MEÐ SAMFYLKINGU
Þegar Ari Eðvald var spurður svaraði hann því til að afar ólíklegt væri að Miðflokkurinn gæti myndað bandalag með Samfylkingu og vinstri flokkunum svo gjörólík væru viðhorf þessara flokka til skipulags- og samgöngumála. En Miðflokkurinn hefur m.a. sett algera uppstokkun á Borgarlínunni í forgrunn í kosningunum.
„Ég sé okkur ekki vera að fara að vinna með
Samfylkingu, Pétri og Heiðu, því þeirra áherslur eru svo fjarlægar. Þau hafa fylgt þessari stefnu í skipulagsmálum til dæmis sem er í andstöðu við vilja borgarbúa síðustu kjörtímabil og við erum aðallega að keyra á því að það þurfi að breyta um stefnu og koma með nýjar áherslur,“ svaraði
Ari.
Hann sagði það sína skoðun að ef kosningarnar færu eins og könnun Gallup sýndi að þá yrði hér vinstrimeirihluti í borginni áfram; meirihluti Samfylkingar, Vinstri, Sósíalistaflokksins og Viðreisnar. - JGH

Var hún að útiloka Miðflokkinn í viðtalinu við Vísi í gær með lúmsku skoti? Hvers vegna var spurningunni ekki fylgt eftir og hún spurð beint út um það? Viðreisn er í lykilstöðu eftir kosningarnar gangi könnun Gallup eftir.

Könnun Gallup sem RÚV birti og hefur vakið athygli. Útilokar Viðreisn Miðflokkinn? Ef svo er þá blasir við meirihluti Samfylkingar, Vinstri, Sósíalista og Viðreisnar eftir kosningar, skv. könnun Gallup.


