Það er að hitna í kolunum - oddvitar flokkanna sitja fyrir svörum á stórfundinum í Skálanum í Gufunesi kl. 20 í kvöld
TÍU DAGAR Í KOSNINGAR. Skálinn í Gufunesi lætur ekki mikið yfir sér. Þar er öflugur veitingastaður sem býður heimilsmat í hádeginu. Engin eru þar kolagrillin og ekki lagt upp úr grillmat. En það verður engu að síður heitt í kolunum þar í kvöld þegar oddvitar allra flokkanna mæta á kosningafund kl. 20:00 hjá Íbúasamtökunum í Grafarvogi og þurfa að standa fyrir sínu máli.
Það er fyllsta ástæða fyrir Grafarvogsbúa að mæta og heyra hvað forystufólkið sem býður sig fram til að vinna fyrir okkur næstu fjögur árin hefur að segja - og hverju það lofar.
Miðað við mælingar á lestri frétta á Grafarvogur.net hafa Grafarvogsbúar mestar áhyggjur af þéttingu byggðar í hverfinu, umhirðu, umhverfi og síðast en ekki síst umferðarþunga.
Ekkert grill í Skálanum en það er að hitna í kolunum í kosningabaráttunni og höldum öllum frambjóðendum flokkanna við efnið og mætum!
KL. 20:00 í kvöld í Gufunesi. - JGH

Oddvitar allra framboða mæta í Gufunesið kl. 20:00 í kvöld. Skálinn er strax á vinstri hönd eftir skiltið.


