Meirihlutinn í borginni áfram við völd stígi Viðreisn í vænginn við Samfylkingu líkt og í síðustu tvennum kosningum

5. maí 2026

Núna eru aðeins ellefu dagar til kosninga. RÚV birti fyrir tveimur dögum nýja könnun Gallup sem sýnir að meirihluti í Reykjavík með Samfylkingu í broddi fylkingar gæti verið áfram við völd stígi Viðreisn í vænginn við Samfylkingu líkt og hún gerði eftir tvennar síðustu kosningar í röð; 2018 og 2022, þegar hún myndaði meirihluta með Samfylkingu og fleiri flokkum og tryggði Degi B. Eggertssyni borgarstjórastólinn áfram. Viðreisn myndaði meira að segja bandalag með Samfylkingu og Pírötum síðast þegar úrslit lágu fyrir.


Meirihluti með Samfylkingu, Vinstrinu (Vinstri grænir og Vor til vinstri), Sósíalistum - og Viðreisn er því á borðinu yrði könnun Gallup niðurstaðan í kosningunum og Viðreisn sneri sér sem fyrr að Samfylkingu.


Sjálfstæðiflokkur og Miðflokkur fengju, skv. þessari könnun, 11 borgarfulltrúa af 23 en Samfylking, Vinstrið og Sósíalistar fengju 10 fulltrúa.


Viðreisn fengi tvo borgarfulltrúa, skv. könnuninni, og hefði því úrslitavald um myndun nýs meirihluta í borginni yrði þetta niðurstaðan.


Spurningin er því: Stígur Viðreisn til hægri eða vinstri? Hvort er líklegra?


Eftir síðustu kossningar mynduðu Samfylking, Píratar og Viðreisn, (leifar af gamla meirihlutanum), með sér bandalag um að ganga saman til meirihlutaviðræðna í borgarstjórn - og kipptu svo Framsóknarflokknum um borð - og var þessi nýi meirihluti kynntur til sögunnar 6. júní 2022.


Miðað við kosningarnar 2018 og 2022 verður að teljast líklegra að Viðreisn spyrði sig áfram til vinstri við Samfylkingu - svo ekki sé nú talað um hversu náið samstarf þessara flokka er í ríkisstjórn og þar sem mikill vilji er til að þétta raðirnar frekar en hitt vegna ESB-kosninganna í lok ágúst.


Það yrði að minnsta kosti saga til næsta bæjar ef Viðreisn sneri sér að Sjálfstæðisflokknum við þær aðstæður sem eru núna í ríkisstjórnarsamstarfinu. En pólitík er svo sem pólitík!

Framsókn, Píratar og Flokkur fólksins ná ekki inn manni skv. þessari könnun. Viðreisn ræður úrslitum um myndun nýs meirihluta verði þetta niðurstaðan í kosningunum eftir ellefu daga.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, mun örugglega hafa sitt að segja um hvort Viðreisn velji Samfylkingu eða Sjálfstæðisflokk eftir borgarstjórnarkosningarnar. Björg Magnúsdóttir er oddviti flokksins í borgarstjórnarkosningunum.


Viðreisn hefur auglýst: Snúum Reykjavík við hvað sem það merkir í ljósi þess að Viðreisn hefur stýrt borginni með Samfylkingu og fleirum í sjö ár af síðustu átta árum.


Samfylking og forverar hennar hafa verið í öndvegi í borginni í meira og minna síðustu þrjátíu árin. Í bæklingi sem Samfylking gaf út á dögunum er rætt um Nýjar áherslur - sama markmið hvað sem það merkir.

Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur fengju 11 borgarfulltrúa, skv. þessari könnun, sem dygði ekki til að mynda meirihluta í 23 manna borgarstjórn.

Vert er að vekja athygli á að bæði Viðreisn og Framsóknarflokkur fóru út úr stjórnarsamstarfinu í Reykjavík þegar Einar Þorsteinsson, oddviti flokksins og borgarstjóri, sleit því 7. febrúar í fyrra. Flokkur fólksins og Vinstri grænir komu inn í staðinn og Heiða varð borgarstjóri.


Það var á vissan hátt klókt hjá Viðreisn að kúpla sig út úr meirihlutanum þegar ár var eftir af kjörtímabilinu og eflaust í og með gert til að búa til ákveðna fjarlægð frá Samfylkingunni fyrir þessar kosningar.


Píratar og Flokkur fólksins mælast ekki með mann inni, skv. þessari könnun Gallup. Og ekki heldur Framsóknarflokkurinn sem fékk fjóra menn síðast. Flokkurinn hafði boðað breytingar fyrir síðustu kosningarnar og fékk fyrir vikið fljúgandi fylgi en sneri sér að myndun nýs meirihluta með Samfylkingu, Viðreisn og Pírötum. Nú er þetta fylgi Framsóknarflokksins farið.


Að vísu hefði fjöldi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Viðreisnar fyrir fjórum árum ekki dugað til að mynda nýjan meirihluta nema þá að fá t.d. Flokk fólksins með sér í lið.


En á þessa samvinnu virtist lítið reyna þar sem Einar sneri sér fljótt að Samfylkingunni við myndun nýs meirihluta sem svo aftur sprakk fyrir rúmu ári.


Kjörsókn var 61% fyrir fjórum árum og um 100 þús. Reykvíkingar á kjörskrá. Kjörsóknin getur skipt öllu máli þegar á úrslitastundu er komið. - JGH

Úrslit kosninganna fyrir fjórum árum þar sem Framsóknarflokkurinn fékk 4 fulltrúa kosna en kemur ekki manni inn núna, skv. könnun Gallups.