Til hamingju Grafarvogsbúar - Fjölnir vann báða bikarana í körfunni. „Sturluð mæting!
8. febrúar 2026
Til hamingju Grafarvogsbúar! Fjölnir tók báða bikarana í körfunni í Smáranum í dag og eru því bikarmeistarar í tveimur yngri flokkum í , 9. flokki (Strákar 14 ára) og 11. flokki (Stákar 16 ára).
Ekkert nema stórkostlegt! Það sem meira var, þeir fengu svo sannarlega góða hvatningu. Grafarvogsbúar flykktust í Smárann og studdu við bakið á strákunum með þessum frábæra árangri.
Fyrri leikurinn, í 9. flokki, hófst í hádeginu og kepptu Fjölnispiltar við ÍA, Skagamenn, og sigruðu nokkuð örugglega 78-66.
Seinni leikurinn hjá 11. flokki hófst kl. 16:45 og þar lögðu Fjölnismenn gott lið KR-inga tveimr stigum; 79-77.
Meðfylgjandi myndir eru fengnar hjá Arnari B. Sigurðssyni.
Þegar Grafarvogur.net
hafði samband við hann eftir leikina sagði hann að þetta hefðu verið frábærir leikir hjá Fjölnismönnum og þeir væru þakklátir: „Það var sturluð góð mæting úr Grafarvoginum á leikina og fyrir það viljum við þakka,“ segir Arnar.
Stórkostlegur árangur og ljóst að það er gríðarlega gott starf unnið í körfunni í Grafarvogi.
Grafarvogur.net óskar strákunum til hamingju með bikarmeistaratitlana tvo: Þið eru vel að þessu komnir! Frábærir. - JGH

Bikarmeistarar 2026. Enginn smá fögnuður, eðlilega, hjá strákunum í 11. flokki (16 ára) eftir nauman sigur á KR-ingum í úrslitaleiknum.

Bikarmeistarar 2026! Þeir stigu nánast trylltan dans strákarnir í 9. flokki (14 ára) eftir sigurinn á ÍA, Skagamönnum.

Hverjir eru bestir? 9. flokkur. Fjölnismenn fagna og lyfta bikarnum í mikilli sigurvímu.

Grafarvogsbúar geta fagnað. Tveir bikarar í Grafarvoginn. Fjölnismenn, 9. og 11. flokkur, unnu báða úrslitaleikina í Smáranum í dag og fengu mikla hvatningu frá mörgum Grafarvogsbúum sem lögðu leið sína í Smárann í dag til að hvetja þessar hetjur.


