Lögreglan og sérsveit lögreglunnar með mikla aðgerð í Grafarvogi eftir hádegi

8. febrúar 2026

Lögreglan og Sérsveit ríkislögreglustjóra voru með mikla aðgerð í Grafarvoginum eftir hádegi í dag. Það var fyrir algera tilviljun að Grafarvogur.net ætti leið um Borgaveginn þegar aðgerðin stóð yfir og yrði vitni að henni.


Þegar Grafarvogur.net hafði samband við lögregluna til að fá upplýsingar um hvað þarna hefði verið um að ræða - og hvort aðgerðin tengdist leit lögreglunnar að meintum árásarmanni sem grunaður er um að hafa stungið annan mann fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur í nótt - varðist lögreglan allra upplýsinga og neitaði að tjá sig að svo stöddu um hvað þarna hefði verið um að ræða. Mbl.is var með frétt um málið í morgun. 


Í frétt mbl.is núna síðdegis segir að maðurinn hafi verið handtekinn á þriðja tímanum í dag í íbúðarhúsnæði.


Grafarvogur.net getur hins vegar ekki, vegna viðbragða lögreglunnar þegar leitað var til hennar í dag, staðfest að um þetta sama mál sé að ræða og að árásarmaðurinn hafi verið handtekinn í Grafarvogi eftir hádegi. - JGH

Frétt Morgunblaðsins núna síðdegis.

Frétt mbl.is í morgun. Sérsveitin var mætt í Grafarvoginn eftir hádegi í dag og tók þar þátt í aðgerðum lögreglunnar.

Frá aðgerð lögreglunnar í Grafarvogi eftir hádegi í dag. Svarti bíllinn yst til vinstri á myndinni er bifreið Sérsveitar ríkislögreglustjóra.