Til hamingju Færeyingar! Að sjálfsögðu flaggaði Ólafur í Grafarvogi fyrir Ólafsvökunni
Þjóðhátíðardagu Færeyinga er í dag, 29. júlí en hann er dánardagur Ólafs konungs Haraldssonar og kenndur við hann sem og hátíðarhöldin í Færeyjum sem hefjast jafnan á þessum degi ár hvert, sjálf Ólafsvakan.
Margvísleg skemmtun fer fram á Ólafsvökunni.
Þess má geta að 29. júlí er færeyska lögþingið jafnan sett á ári hverju.
Að sjálfsögðu var færeyski fáninn dreginn að húni í Grafarvogi í tilefni dagsins og Ólafsvökunni af Ólafi Sverrissyni, verkfræðingi og umtöluðum fánaáhugamanni í Hamrahverfinu.
Þjóðfáni Færeyja nefnist Merkið og var hannaður af færeyskum námsmönnum í Kaupmannahöfn. Hann var dreginn að húni í fyrsta sinn í Færeyjum árið 1919.
Til hamingju Færeyingar!
- JGH
Flaggað í Grafarvoginum í tilefni þjóðhátíðardags Færeyinga og Ólafsvökunni.


