Leikurinn um verslanir í Torginu frá upphafi fær frábærar viðtökur. Takk! Sjá listann!

16. júlí 2026

Leikurinn okkar um hvaða þjónusta og verslanir hafa verið frá upphafi í þessari fyrstu verslunarmiðstöð í Grafarvogi,Torginu, hefur fengið frábærar viðtökur.


Hann spannst út frá því að við rákumst á mynd af Torginu í myndasafninu okkar. Mynd frá því í fyrrasumar.


EITT STÓRT TAKK til ykkar Grafarvogsbúar og með ykkar liðsinni hefur saga verslunar í Torginu skýrst og til hefur orðið listi sem við unnum upp úr upplýsingum ykkar.


Torgið var byggt af hjónunum Gunnlaugi Guðmundssyni og Svanhildi Erlu Jóhannesdóttur Levy sem ráku til að byrja með Gunnlaugsbúð í litlum skúr, gömlum sumarbústað, á lóðinni við Hverafold þegar Grafarvogurinn byggðist hratt upp á níunda tug síðustu aldar.


Þar opnuðu þau og ráku stækkaða Gunnlaugsbúð í kjallaranum, söluturninn Foldaskálann við aðalinnganginn á 2. hæð og Sportbúð Grafarvogs í hólfinu vestast á 2. hæð. (Lengi blómabúð, núna Ármenn).


Þær Auður G. Eyjólfsdóttir, tannlæknir á 3ju hæð, og Jónína S. Snorradóttir, hárgreiðslukona í Höfuðlausnum á 3ju hæð, hafa verið með rekstur í húsinu frá upphafi en verslunarmiðstöðin tók til starfa í kringum 1990.


Pétur Viðarsson keyti Bókabúð Grafarvogs í byrjun ársins 1994 og heldur núna úti einu bókabúðinni í hverfinu og gott ef ekki í höfuðborginni.


HÉR ER LISTINN GÓÐI. (Nokkuð skotheldur, höldum við).


NEÐSTA HÆÐIN

* Gunnlaugsbúð, (Fyrsta matvörubúðin).

* Nýkaup. (Þá flotta Hagkaup),

* Nóatún. (Kaupás keypti).

* Nettó. (Síðasta matvöruverslunin í Torgi).

* Prjónabúð-garnabúð. (Við hliðina á Nettó).

* Tískuverslun. (Við hliðina á Nettó).

* Sandholtsbakarí. (Móti apótekinu)

* Byssubúð Agnars. (Við hliðina á bakaríinu, nýhætt)

* Grafarvogsapótek. (Selt til Lyfju).

* Smíðabær. (Byrjaði uppi, flutti niður).

* Trúfélag. (Var um tíma í matvörurýminu).

Bolasmiðjan. (Í matvörurýminu).

Kjötvinnsla. (Að byrja, skilst okkur).

Hverafold bakarí. Topptertur og brauð.

* = hætt.


MIÐHÆÐIN (2. HÆÐIN)

* Búnaðarbankinn.(Kaupþing og Arion).

* Prjónabúð. (Var í litlu horni v. bankann).

* Foldaskálinn. (Gunnlaugur opnaði).

* Sjoppan í Foldaskála.

* Vídeóleigan Heimamynd.

* Smíðabær. (Flutti niður og hætti svo).

* Ljósmyndastofa. (Cocos í rýminu núna).

* Pósturinn. (Sólstofan er í rýminu núna).

* Símabær. (Seldi síma og tæki).

* Raftækjabúð. (Varð Bókabúðin).

* Skóbúð.

Bókabúðin.

* Blómabúð Grafarvogs.

* Blómabúðin Runni.

* Sportbúð Grafarvogs. (Gunnlaugur opnaði).

* Efnalaugin Svanhvít. (Síðar Fönn).

* Skósmiður.

* Dýralíf.

* Barnafataverslun.

* Tískuverslun. (Á undan Cocos).

Tískuverslunin Cocos.

Pizzan.

Stiletto. (Veitingastaður).

Sólbaðsstofan Sportsól.

Ármenn. (Félag flugveiðimanna).

IOGT. (Í gamla húsnæði bankans).

Æskan (hluti af IOGT).

Pósturinn. Box utandyra.

* Cooking Harmony. (var v. hlið Pizzunnar).

* = hætt.


EFSTA HÆÐIN (3. HÆÐIN)

Tannlæknastofa (Auður G. Eyjólfsdóttir).

Hársnyrtistofan Höfuðlausnir. (Jónína S. Snorradóttir).

Fasteignasala.

Snyrtistofa Grafarvogs.

Sjálfstæðisflokkurinn.

Snyrtistofan Afródíta.

Costa Verde. (Nuddstofa).

* Heilsugæsla Grafarvogs.


Hér er símaskráin fyrir Hverafold 1-3.



HVERAFOLD 5 (BAKHÚSIÐ).

(Tengdist HVERAFOLD 1-3 með yfirbyggingu.)


* Sólbaðsstofa Grafarvogs. (Nú íbúðarhúsnæði).

* Tónlistarskóli Grafarvogs.

* Apótekið var í þessum hluta á jarðhæð.

* Salur Sjálfstæðisflokksins um tíma.

Tónskólinn í Reykjavík. (Áður tónlistarskólinn).

Lyfjalausnir. (Lyfjaskömmtun á vegum Lyfju).

Ölhúsið. (Áður Gullöldin).

Gullöldin café-bar.

Nokkrir einstaklingar í íbúðarhúsnæði.


ATH.

Þessi listi er fyrst og fremst til gamans gerður til að rifja upp mikla starfsemi í þessari fyrstu miðstöð verslunar í Grafarvogi og sem er hluti af verslunarsögu hverfisins.


Þegar Spöngin var opnuð með Bónus, Hagkaupum og þeim kjarna sem við þekkjum núna missti Torgið spón úr aski sínum og ferðum fólks þangað fækkaði.


Einnig tók lítil verslunarmiðstöð við Langarima síðar til starfa sem og við Húsahverfið og allt hafði þetta áhrif á Torgið.


Við segjum að þessi listi sé nokkuð skotheldur en ef til vill vantar einhverja og hugsanlega gætir einhverrar ónákvæmni um einstakar verslanir og þjónustufyrirtæki.


Við tökum enga ábyrgð á því.


Fyrst og fremst er þetta gert til fróðleiks og skemmtunar - og gaman að rifja upp gamla tíma með þúsundum lesenda okkar.


Takk aftur fyrir ábendingarnar og að taka þátt með okkur. - JGH

Aðalinngangurinn í Torgið. Hér iðaði allt af lífi og jafnan var straumur fólks í verslunarmiðstöðina. Búnaðarbankinn var til vinstri (síðar Kaupþing og Arion banki) og þar náðu biðraðir oft langt út á gang. Arion banki flutti árið 2010 upp í hús Húsgagnahallarinnar á Höfða.

Jarðhæðin (2. hæðin) sem snýr að Fjallkonuvegi. Bókabúðin er eina búðin sem hefur verið í þesari lengju frá upphafi. Á þriðju hæð hafa tannlæknar og hársnyrtistofan Höfuðlausnir verið frá upphafi.

Núna eru framleiddir bolir þar sem Gunnlaugsbúð, Nýkaup, Nóatún og Nettó voru áður.