Þær hófust fyrir um ári. Framkvæmdir við Höfðabakkann sýnast á lokastigi
Það tók næstum ár. Ekki verður annað séð en að víðfrægar framkvæmdir við fimm gatnamót við Höfðabakkann séu á lokastigi.
Einn kassi fullur af sandi á umferðareyju virðist mjög svo einmana á eyjunni. Hann hafði meiri félagsskap fyrr í sumar.
Allt byrjaði þetta á því að ákveðið var að uppfæra umferðarljósin við þessi fimm gatnamót en úr urðu meiri framkvæmdir þar sem eyjur voru lengdar og breikkaðar - og þannig þrengt að umferð bíla við þessa helstu samgönguæð inn í Grafarvoginn.
Til stóð að klára þessar framkvæmdir sl. haust en það tókst ekki; gatnamót Höfðabakka og Bíldshöfða fóru í bið og hófust þær á vormánuðum. Það eru þær framkvæmdir sem eru núna að klárast.
Miklar umferðartafir hafa fylgt þessum framkvæmdum.
Mestur hitinn og óánægjan hefur verið með gjörbreytt gatnamót við Höfðabakkann og Bæjarháls þar sem beygjuakreinum inn í Árbæinn var fækkað úr tveimur í eina og þægilegur beygjuvasi inn á Ártúnsholtið var tekinn í burtu - sem af Bæjarhálsinum inn á Höfðabakkann til norðurs.
En þetta er að klárast. Einmana kassinn er tákn um það! - JGH

Um miðjan ágúst í fyrra við Höfðabakkann.

Kassinn einmana á eyju við Höfðabakkann við lok framkvæmda. Hann hafði meiri félagsskap fyrr í sumar.

Vel gert og til fyrirmyndar. Merkt gangbraut við beygjuvasann inn á Höfðabakkann í austurátt að Höfðabakka 9. Brúna stéttin er sérhönnuð fyrir sjónskerta.


