Svona flöggum við í Grafarvogi í dag. Fyrsti leikurinn á HM er Mexíkó gegn Suður-Afríku

11. júní 2026

Svona flöggum við í Grafarvogi í dag í tilefni þess að HM í fótbolta hefst með leik Mexíkó og Suður-Afríku kl. 18:50 á RÚV 2.


HM-stofan byrjar á RÚV kl. 18:00 og þar hita sérfræðingarnir upp fyrir veisluna.


Og sá sem sér um að flagga í Grafarvoginum er auðvitað okkar maður við fánastöngina, hinn þekkti fánaáhugamaður Ólafur Sverrisson verkfræðingur.


HM-leikirnir verða að þessu sinni meira og minna sýndir á RÚV 2 þannig að fréttir og hefðbundin sjónvarpsdagskrá RÚV raskast langt frá því jafn mikið og á undanförnum stórmótum.


Hátíðardagur fyrir íþróttaáhugamenn því veislan er að hefjast.


Keppt verður í þremur löndum; Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.


Úrslitaleikurinn verður í New York, hinn 19. júlí en 48 þjóðir taka þátt í mótinu að þessu sinni. - JGH

Heimsmeistarakeppnin í fótbolta hefst í dag með leik Mexíkó og Suður-Afríku. HM-stofan á RÚV hefst með upphitun kl. 18:00.

Grafarvogurinn er með þetta. Tvíflöggun í tilefni af opnunarleiknum á HM í dag.