Þessir til fyrirmyndar en mikil brögð eru að því að unglingar á hlaupahjólum noti ekki hjálma

11. júní 2026

Hópur ungra manna var á tali við lögregluna á planinu við Spöngina í gærkvöldi. Ekki er svo sem vitað um umræðuefnið en vel virtist fara á með þeim og lögreglunni. Miklar sögur ganga núna um að nú sé jafnvel í „tísku“ hjá ungligum á rafhlaupahjólum að nota ekki hjálma. Það er slæm „tíska“!


Eitthvað mun vera um að hluti af fermingarpeningum unglinga fari í að kaupa rafhlaupahjól.


Um noktun rafhlaupahjóla gilda mjög strangar reglur og þar er enginn afsláttur gefinn af því að nota hjálma og sömuleiðis má hraðinn ekki fara upp fyrir 25 km. á klukkustund. Sjá hinar ströngu reglur hér

Það gilda strangar reglur um rafhlaupahjól.

Unglingar undir 16 ára aldri þurfa alltaf að nota hjálm. En auðvitað ætti það að vera óháð aldri.