Svona dagur! Besti vordagurinn til þessa og allt verður svolítið léttara!

20. maí 2026

Dagurinn í dag er besti vordagurinn til þessa og svo sannarlega fær tilveran á sig annan blæ og allt verður svolítið léttara - þótt það hafi svo sem ekki verið þungt fyrir. Yndislegur dagur.


Grafarvogur.net átti leið upp í Spöng í góða veðrinu og áttaði sig loksins á því eftir að fara nánast daglega i Bónus að það er opið þar frá níu til níu, eða öllu heldur 9 til 21.


Þarna var heitur pottur - eða öllu heldur skel, rígbundin ofan á kerru á stæðinu við Bónus. Ekki var nú vatninu samt fyrir að fara.


Nú, aldrei þessu vant lá leiðin um Móaveg fyrir aftan Spöngina og þaðan um Vættaborgir minnugur þess að á íbúafundi á Bókasafninu í vetur var haft á orði að Risa-Spöngin sem til stendur að byggja muni varpa skugga á Vættaborgir.


Svo var það Borgaskóli og leikskólinn Hulduheimar. Þar var svo sannarlega vorbragur á öllu.


Allir í sólskinsskapi og úti að leika enda líf og fjör í leikskóla á svona dögum. - JGH

Með heitan pott - eða öllu heldur skel - í eftirdragi í Spönginni. Ekkert var vatnið. Það var búið að tæma úr pottinum. Skrítið!

Bónus er nú opinn frá níu til níu en var áður frá tíu til níu.

Fyrir aftan Spöngina við Móaveg. Hér verður öðruvísi umhorfs þegar Risa-Spöngin verður komin eftir einhver ár en íbúar í Vættaborgum ræddu um það á íbúafundi í vetur að þessi risaklasi varpi skugga í hverfið á sólardögum.

Leikskólinn Hulduheimar við Borgaskóla. Það eru allir sólarmegin í svona veðri. Líf og fjör í leikskóla.

Spöngin á eftir að breytast.