Sextán stiga hiti í dag og framhaldið lofar góðu. Það verður bikað á morgun!
20. maí 2026
Bíllinn sýndi 16 stiga hita eftir hádegi og þetta er tvímælalaust besti vordagurinn til þessa. Yndislegir svona dagar!
Þessi gulu skilti blöstu við í Hamrahverfinu í dag. Ef veður leyfir, segir á skiltinu.
Alvöru útivistardagur í dag og framhaldið lofar góðu.
Það verður bikað á morgun. - JGH

Við Dverghamra. Svona skilti eru núnast vorboðinn ljúfi.

Við Hesthamra. Veðrið leyfir alveg malbik á morgun - ekki satt?

