Ofurhugi sveif um á svifvæng yfir ströndinni í Þorlákshöfn í augsýn fjölda kylfinga
Það ber margt fyrir augu kylfinga. Og meira en bara brautir og hvítir boltar.
Þegar Grafarvogur.net var á ferð í Þorlákshöfn í gærdag mátti sjá ofurhuga sem sveif um á svifvæng þöndum yfir ströndinni í Þorlákshöfn og fyrir framan fjöldan kylfinga á golfvellinum sem er við ströndina.
Þetta var hrífandi sjón og ofurhuginn nýtti sér vindinn líkt og hann svifi þarna um í sviflugvél. Fram og til baka, upp og niður.
En hvað er svifvængur?
„Svifvængur er vængur úr þunnum en sterkum nælondúk. Á flugi helst hann útblásinn af loftinu sem leikur um hann en engar stengur eða stífir hlutir eru notaðir. Lögun hans gefur honum nauðsynlega flugeiginleika eftir sömu lögmálum og eiga við um venjulega flugvélarvængi,“ segir á vef Sviffélags Reykjavíkur.
„Er þetta sama og fallhlíf? Nei alls ekki. Fallhlíf er aðallega til þess að draga úr lóðréttum fallhraða en svifvængur er notaður til svifflugs,“ segir ennfremur.
Skemmtilegt!
Enda Ölfusið þar sem hamingjan býr, eða svo segja þeir sjálfir.
- JGH

Eðlilega vakti ofurhuginn athygli fjölmargra kylfinga á vellinum.
Upp og niður, út og suður.

