Nú er það svart, það er ljóst! Svarthöfði sjálfur bikaður með bútasaumi

5. ágúst 2026

Brekkan góða frá Sævarhöfða upp að Stórhöfða er löngu kunn á meðal Grafarvogsbúa og auðvitað íbúa Bryggjuhverfisins sem aka þarna framhjá á hverjum degi.


Hún hefur verið þarna, ja eiginlega frá því elstu menn muna.


Svarthöfði heitir annars þessi ágæti, þekkti og fjölfarni spotti.


Það er svart þegar Svarthöfði sjálfur er bikaður. Og það þótt um bútasaum sé að ræða.


Nú er það svart, það er ljóst, eins og maður sagði. - JGH

Ekki brekkusöngur heldur brekku-bútasaumur.

Aksjón í gangi. Alltaf forvitnilegt og skemmtileg þegar verið er að gera og framkvæma einhvers staðar.

Svarthöfði bikaður. Þá er það svart!