Ragnhildur Sigurðardóttir sló fyrsta höggið á Íslandsmótinu í golfi á Korpu í morgun

6. ágúst 2026

Það fór vel á því að drottningin í golfinu, Ragnhildur Sigurðardóttir, kylfingur í GR, slæi fyrsta höggið á Íslandsmótinu í golfi sem hófst á Korpuvellinum í mogun.


Með höggi hennar var Íslandsmótið í golfi sett árið 2026 - og það í talsverðri rigningu.


Mótið stendur yfir í fjóra daga og er þess að vænta að vætan verði að baki á þriðja og fjórða degi, laugardag og sunnudag.


Á meðal viðstaddra voru Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, Gísli Guðni Hall, formaður GR og Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ.


Þrír níu holu golfvellir eru á Korpunni, Sjórinn, Áin og Landið. Leikið er á Sjónum-Ánni.


Spennandi mót framundan og Grafarvogurinn miðpunktur kylfinga um allt land næstu daga. - JGH

Á fyrsta teig í morgun við setningu Íslandsmótsins. Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, Gísli Guðni Hall, formaður GR og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ. (MYNDIR: GR).

Regnhlífarnar komu sér vel í morgun - og verða væntanlega á lofti hjá kylfingunum bæði í dag og á morgun.