Það fæst meira en bensín hjá Olís. Hér ná menn sér í vatn til að vökva blómin
Hann var uppi á palli bílsins að dæla vatni á tankinn á þvottaplaninu hjá Olís í Grafarvoginum í hádeginu. Öflugur vatnstankur á pallinum. Hann fyllt'ann að vísu ekki; lét rétt fjórðung eða svo duga.
Eitthvað af vatni fór líka á grænu könnurnar.
Starkaður Guðmundsson heitir hann á pallinum og sagðist vera sumarstarfsmaður garðyrkjudeildarinnar en væri annars nemi í Tækniskólanum.
Ætlunin var að skottast niður í Bryggjuhverfið og gróðursetja þar plöntur við Naustabryggjuna - og vöka auðvitað í leiðinni.
Þetta er auðvitað tími vökvunar og vatns eftir þurrkinn að undanförnu.
- JGH

Nú er tími vökvunar og gróðursetningar. Starkaður Guðmundsson heitir hann starfsmaður garðyrkjudeildar borgarinnar sem dældi vatni á stóra vatnstankinn.

Kannan klár fyrir vökvun og gróðursetningu í Bryggjuhverfinu.

