Straumur fólks í opið hús hjá Rafmennt við Stórhöfðann. Skólinn fagnar 50 ára afmæli
Það er víða straumur þegar kemur að rafmagni sem við getum engan veginn verið án. Nú er opið hús hjá Rafmennt við Stórhöfða 27 og verður til kl. 15:00 í dag en ungt fólk getur lært rafiðnaðarfögin og kvikmyndun við skólann.
Hátíðin hófst kl. 11:00 í morgun og það hefur verið ágætis straumur fólks til að kynna sér verkefni skólans og hvað hann hafi upp á að bjóða - og auðvitað prófa af eigin raun að tengja.
Þarna er sem sagt stuð og rafmagnað andrúmsloft - svo við leikum okkur aðeins með málið - en skólinn fagnar 50 ára afmæli á þessu ári.

Er ekki kominn tími til að tengja? - segir í þekktu lagi.

Kristján Þórður Snæbjarnarson, Grafarvogsbúi, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambands Íslands og Þór Pálsson, framkvæmdastjóri Rafmenntar.

Rafmennt býður upp á kennslu í kvikmyndun.
Um sögu Rafmenntar segir þetta á heimasíðu þeirra:
„Rafiðnaðarmenn hafa byggt upp og rekið umfangsmikið endurmenntunarkerfi frá árinu 1975. Endurmenntunarnefndir rafiðna og rafeindavirkja stofnuðu Rafiðnaðarskólann 20. september 1985. Lengst af báru nefndirnar ábyrgð á fræðslustarfinu. Árið 1993 var formlega stofnað til skólanefndar Rafiðnaðarskólans sem bar þá ábyrgð á starfseminni. Árið 2004 var rekstri skólans breytt í hlutafélag "Rafiðnaðarskólinn ehf" þar sem hluthafar voru tveir, RSÍ og SART, hvor um sig með 50% hlut.
Rafiðnaðarskólinn var fyrst til húsa í Skipholti (á tveimur stöðum), síðan í Skeifunni 11b frá 23. október 1989 til 15. desember 2009, fyrst í stað aðeins á 3. hæðinni en svo bættist 2. hæðin við.
Þann 15. desember 2009 flutti Rafiðnaðarskólinn á Stórhöfða 27 á 3. hæðina. Fyrsta hæðin bættist við haustið 2010 sem var innréttuð sérstaklega með þessa starfsemi í huga.
Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins var stofnuð árið 1996 til að halda utan um umsýslu með sveinsprófum og námssamningum ásamt því að vera leiðandi í endurskoðun á grunnnámi rafiðnaðarmanna. Skrifstofan sá einnig um að kynna nám í rafiðnaði fyrir ungu fólki og aðstoða það með frítt námsefni. Á vefnum rafbok.is er allt námsefni sem notað er til kennslu í rafiðngreinum í framhaldsskólum aðgengilegt nemendum þeim að kostnaðarlausu.
Á vordögum 2018 ákváðu stjórnir Rafiðnaðarskólans og Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins að sameina þessi tvö félög í eitt undir merki RAFMENNTAR fræðsluseturs rafiðnaðarins og færa þannig öll verkefni sem snúa að menntamálum rafiðnaðarmanna, frá upphafi náms til loka meistaraskóla og síðan þeirrar endurmenntunar sem félagsmenn þurfa stöðugt að vera að nýta sér, í eitt félag.
Breytingunum er ætlað að efla þjónustu við félagsmenn og nýta betur það fjármagn sem kemur inn í menntasjóð til að auka fjölbreytileika nýrra námskeiða og kynningu á nýrri tækni.
Rafmennt er í jafnri eign RSÍ (Rafiðnaðarsamband Íslands) og SART (Samtök rafverktaka).“ - JGH

Straumur og stuð.

Fortíð og framtíð. Fimmtíu ára saga að baki og framtíðin er sömuleiðis rafmögnuð.


