Flaggað í Hamrahverfi. Vitið þið hvaða fáni þetta er?
Grafarvogsbúinn Ólafur Sverrisson, nágranni minn í Grafarvogi og stundum nefndur fánakarlinn í Hamrahverfi, dró þennan fána að húni í morgun. Ég staldraði auðvitað við þegar ég átti leið fram hjá og virti þennan sérstaka fána fyrir mér - kannaðist nú ekki við hann.
Hvaða þjóðfáni er þetta?
Ekki gat ég fundið út úr því og hringdi í Ólaf.
„Þetta er japanski flotafáninn,“ sagði hann að bragði.
- Það er von að ég fyndi hann ekki, svaraði ég. - Hvernig rataði hann í þínar hendur?
„Ég hef eignast marga fána með því að kunningjar mínir eru á ferð og kippa fánum með sér heim. Þessi er þannig til kominn að vinkona mín var Japan að hitta son sinn, sem býr þar, og hafði mig í huga þegar hún keypti hann.“
Skemmtilegt.
- Ég ætla að hafa þetta sem einhvers konar föstudagsgetraun að þessu sinni - svaraði ég; og sú varð raunin. - JGH

Fallegt verður og nánast logn í Hamrahverfinu eftir hádegi í dag - og ekki besta veðrið til að mynda blaktandi fána.

