Allt fyrir ástina. Grafarvogur.net á ferð í borg heilags Valentínusar; borg þeirra ástfögnu
Þegar Grafarvogur.net var á ferð um Ítalíu sl. sumar og kom til borgarinnar Terní, fyrir norðan Róm, kom auðvitað ekkert annað til greina en að gista á Hótel Valentínó. Þetta er borgin sem kennd er við heilagan Valentínus, verndara ástfanginna, og þann sem ber ábyrgð á Valentínusardeginum þótt nokkuð sé um liðið frá því hann var uppi.
Heilagur Valentínus (San Valentino) fæddist árið 225 e. Kr. í borginni Interamna Naharsvar, sem nú heitir Terní, og var þar biskup. Hann var þekktur fyrir guðrækni sína og góðvild og var einlægur talsmaður kærleikans.
Á þessum tíma ríkti Claudíus II keisari í Róm, en hann hafði bannað ungum mönnum að giftast þar sem hann taldi að einhleypir menn væru betri hermenn.
Valentínus virti þetta boð að vettugi og gaf saman pör í laumi. Þegar upp komst var hann handtekinn og færður til Rómar í fangelsi.

Rauði liturinn er áberandi við margar götur í Terní.
Í fangelsinu er sagt að Valentínus hafi læknað blinda dóttur fangavarðarins. Áður en hann var tekinn af lífi, þann 14. febrúar árið 269 e. Kr. skrifaði hann henni kveðjubréf og undirritaði það: „Frá þínum Valentínusi“ (From your Valentine).
Þaðan er komin sú hefð að senda Valentínusarkort.
Terníbúar eru stoltir af sínum dýrlingi og er borgin oft kölluð borg ástarinnar, nú eða borg þeirra ástföngnu. (La Città degli Innamorati). Jarðneskar leifar dýrlingsins eru varðveittar í kirkjunni Basilica di San Valentino í Terní.
Á hverju ári, allan febrúarmánuð, heldur borgin hátíð þar sem þúsundir para koma saman til að endurnýja heit sín í kirkjunni. Þetta er lítil og þægileg borg með um 100 þúsund íbúa fyrir norðan Róm og vel þess virði að sækja hana heim. - JGH

Hér gengum við fram á brúðkaupsveislu eitt kvöldið.

Terní er fyrir norðan Róm, í héraðinu Umbría. Frekar lítil og þægileg borg með rúmlega 100 þúsund íbúa.

Ítalía. Mjóar götur og skuggar.

Hér tjá menn sig með höndunum.

Sumir eru ástfagnir af mat. Ástin bæði liggur og hangir í loftinu.

Dómkirkjan í Terní.

Já, já, það er allt í lagi að tylla sér við ísbarinn og fá sér smá vatnssopa.

Það segir sig sjálft að við gistum á þessu hóteli.

Er maður nokkuð staddur á Ítalíu?

Í skugga trjánna í garðinum fyrir neðan dómkirkjuna.

Það þarf líka að hugsa um ferfætlingana í hitanum.

Torgið í Terní. Fáir á ferð í hita dagsins.

Þarna blasir fortíðin við. Valentínus fæddist árið 225 e. Kr. og var líflátinn 14. febrúar 269 e. Kr.

Litadýrð i borg ástarinnar.

Og ég sem hélt að ég fengi kjötbollur i brúnni sósu að hætti mömmu.


