Stórskemmtileg gagnrýni Jónasar Sen - Sinfónían fékk Daða Frey þversum í hálsinn
Jónas Sen fer á kostum á visir.is í lýsingum sínum á tónleikum Daða Freys Péturssonar með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem haldnir voru í síðustu viku. Jónas gefur tónleikunum fimm stjörnur en lýsing hans á tónleikunum er með þeim hætti að það er ekki annað en hægt að segja frá henni hér á Grafarvogur.net (og eflaust líka margir Grafarvogsbúar á tónleikunum).
En gefum Jónasi Sen orðið:
„Steikt ýsa með sítrónupipar getur verið góð. En steikt ýsa með mjög miklum sítrónupipar er ekkert endilega miklu betri. Í gegnum tíðina hafa popptónleikar með Sinfóníuhljómsveit Íslands einmitt einkennst af of miklum sítrónupipar. Hljómsveitin þekur aumingja poppsöngvarann í svo miklum pipar að hann verður óætur.
Þetta var vissulega reynt á fimmtudagskvöldið. Sinfónían gerði heiðarlega tilraun til að gleypa söngvarann með roði og beinum, en komst fljótt að því að hægara er sagt en gert að kyngja rúmlega tveggja metra háum Sunnlendingi.
ÓSÖKKVANDI
Daði Freyr býr nefnilega yfir raddböndum sem eru ekkert venjulega voldug. Meðan við hin verðum hás við það eitt að kalla á hundinn, stendur Daði bara þarna eins og hann sé að bíða eftir strætó, opnar munninn og út kemur þessi billjón króna rödd — þétt, kristaltær og algjörlega áreynslulaus. Það hefði mátt bæta við heilli lúðrasveit, tveimur karlakórum og þotuhreyfli á sviðið, og samt hefði það ekki þaggað niður í Daða.
Sinfónían var þó ekkert á þeim buxunum að gefast upp átakalaust. Útsetningarnar voru sumar hverjar svo stórkarlalegar að þær hefðu sómt sér vel í lokaorrustu í Hringadróttinssögu. Um leið voru þær bráðskemmtilegar. Sérstaklega var mikið stuð á málmblásurunum, sem blésu af slíkum móð að maður óttaðist um tíma að glerhjúpurinn á Hörpu myndi gefa sig. En allt kom fyrir ekki. Hljómsveitin gat hamast eins og hún vildi; röddin var alltaf ofan á.
FÝLULEGIR TITLAR
Svo er það sviðsframkoman. Daði er með einhverja mest afslöppuðu útgeislun sem sést hefur síðan letidýrið var skapað og plantað á trjágrein í aldingarðinum Eden. Hann var gjörsamlega laus við alla stjörnustæla og tilgerð, og virtist fyrst og fremst vera þarna af því að honum fannst þetta vandræðalega gaman. Og það smitaði. Jafnvel bældustu tónleikagestirnir í salnum voru farnir að brosa út að eyrum og kinka kolli í takt.
Þessi taumlausa lífsgleði kom á óvart þegar rýnt var í lagalistann: „I’m Fine“, „I’m Not Bitter“, „I Don’t Wanna Talk“ og loks „I’m Out and I Wanna Go Home“. Þetta er ekki lagalisti poppstjörnu; þetta er innri einræða manns sem hefur verið dreginn nauðugur í leiðinlegt matarboð, stendur úti í horni með volgt hvítvínsglas og þráir ekkert heitar en að komast heim í náttfötin.
Lögin sjálf, sem flest eru úr smiðju Daða og meðhöfunda hans, eru auðvitað samin til þess eins að draga fólk út á dansgólfið. Fingraför hans eru svo greinileg að hvert þeirra þekkist á fyrsta takti, og það var ómögulegt að fá nóg af þeim. Söngurinn og sjarminn voru þannig að maður hefði glaður hlustað á Daða syngja símaskrána allt kvöldið.
ÞAÐ HÆGÐIST Á
Kærkomin pása var þó tekin frá látunum í laginu „Feel It“, þar sem dregin var fram þessi líka gullfallega og viðkvæma harpa og sett í stórt hlutverk. Þarna virtist sem Sinfónían hefði skyndilega fengið þá byltingarkenndu hugdettu að kannski þyrftu ekki allir níutíu hljóðfæraleikararnir að spila á sama tíma. Útkoman var hreinasta unaðsstund þar sem tónlistin fékk loksins að anda, án þess að nokkur væri að blása í básúnu beint í hnakkann á manni.
ina lagið á dagskránni sem Daði átti engan þátt í að semja var „Rólegur kúreki“ eftir þau Bríeti og Pálma Ragnar Ásgeirsson. Í grunninn er þetta lágstemmt og fallegt trúbadorlag, en þarna missti Sinfónían sig aðeins í ákafanum. Strengjasveitin réðst á lagið af slíkri ástríðu að það var engu líkara en hún ætlaði að knúsa kúrekann til bana.
Til að kóróna veisluna mætti svo Ásdís á sviðið og tók lögin „Náum aðeins andanum“ og „Feel the Love“ með Daða. Þvílík söngkona! Hún söng ekki bara með raddböndunum heldur með öllum líkamanum. Það var eins og hún sjálf hyrfi og aðeins röddin væri eftir.
ÚTGÖNGUBANN
Þegar líða tók á kvöldið reyndi Daði að gefa salnum kurteislegar vísbendingar um að kominn væri háttatími með því að syngja „I’m Out and I Wanna Go Home“. Áhorfendur í Eldborg vildu ekki heyra á það minnst. Þeir neituðu alfarið að hreyfa sig úr sætunum og tóku Daða í raun í gíslingu með lófataki.
Allt ætlaði svo um koll að keyra í seinna aukalaginu — sjálfu Eurovision-laginu „Think About Things“ sem heimsfaraldurinn rændi af okkur á sínum tíma. Á þeim tímapunkti fóru hlutirnir úr böndunum. Enginn vissi lengur hver var að skemmta hverjum; virðulegir hljóðfæraleikarar í kjólfötum, Daði og áhorfendur voru öll komin í eina allsherjar, tjúllaða sveitaballsstemningu.
Eftir tónleikana keyrði ég skjálfandi í Aktu taktu með „Think About Things“ á fullu í hátölurunum. Stúlkan sem afgreiddi mig brosti, og ég sá hana taka dansspor meðan hún útbjó súkkulaðisjeikinn minn. Ég fékk hann því bæði hristan OG hrærðan. Namm.
NIÐURSTAÐA:
Stórfenglegt kvöld. Sinfónían mætti með allt sitt stórskotalið, en Daði Freyr gekk af velli sem óumdeildur sigurvegari — án þess að hafa svo mikið sem þurft að bretta upp ermar.

Daði Freyr Pétursson á tónleikunum með Sinfó í síðustu viku, fimmtudagskvöldið 5. nóvember.

