Húsfyllir á bókasafninu þegar nokkrar perlur Björgvins Halldórssonar voru fluttar í dag

7. nóvember 2026

Það var líflegur og sneisafullur salur af áhugasömum tónelskandi hlustendum á bókasafninu í Spönginni í Grafarvogi í dag þegar nokkur af vinsælustu lögum Björgvins Halldórssonar voru flutt af þeim Sigvalda Helga Gunnarssyni, söngvara og gítarleikara, og Leifi Gunnarssyni kontrabassaleikara. Björgvin var goðsögn í heimi íslenskrar tónlistar en hann féll frá í apríl á þessu ári. Hinn mikli fjöldi sem mætti og hlýddi á lög meistarans á bókasafninu í dag segir sína sögu um vinsældir hans.


Þessi söngdagskrá bar yfirskriftina Á Dægurflugum og var frá kl. 13:15 til 14:00.


Björgvin skildi eftir sig fjöldan allan af dásamlegum dægurperlum sem lifa með þjóðinni. Hann var í mörgum af vinsælustu hljómsveitum landsins seinni hluta 20. aldarinnar. Má þar nefna Brimkló, Ðe lónlí blú bojs og HLH flokkinn.


Rödd Björgvins var einstök og eitt af einkennum hennar var hve auðvelt var að greina texta lagannna sem hann söng; svo skýr var rödd meistarans.


Falleg og góð stund á bókasafninu í Spönginni í dag. - Magnús Ásgeirsson / JGH

Nokkrar af perlum Björgvins Halldórssonar voru fluttar á bókasafninu í Spönginni í dag og ekki fór á milli mála að lögin hans njóta mikilla vinsælda, slík var mætingin á tónleikana. (Mynd: Magnús Ásgeirsson).

Það voru þeir Sigvaldi Helgi Gunnarsson, söngvari og gítarleikari, og Leifur Gunnarsson kontrabassaleikari sem fluttu nokkur af vinsælustu lögum meistara Björgvins Halldórssonar. (Mynd: Magnús Ásgeirsson.)