Aldan eins árs! Þeir Páll og Haraldur segja Grafarvogsbúa eiga sinn þátt í vöruvalinu
Fisk- og sælkeraverslunin Aldan í Spönginni er eins árs. Þeir Páll Fannar Pálsson og Haraldur Geir Hafsteinsson, eigendur Öldunnar, segja að tíminn hafi flogið þetta fyrsta ár og í viðtali við mbl.is kemur fram hjá þeim að Grafarvogsbúar eigi sinn þátt í að móta framboðið og vöruvalið í versluninni á þessu fyrsta ári. Hafið var áður í Spönginni þar sem Aldan er núna.
„Tíminn hefur flogið áfram og þetta hefur verið bæði skemmtilegt og lærdómsríkt ár,“ segir Páll Fannar Pálsson við mbl.is en tekið er fram í viðtalinu að þeir félagar séu jafnan kallaðir Palli og Halli. Fram kemur hjá þeim að þeir hafi bætt við nýjum réttum og vörum á þessu fyrsta ári meðal annars með hliðsjón af óskum og ábendingum viðskiptavina.
„Við erum fyrst og fremst ótrúlega þakklátir fyrir þær frábæru viðtökur sem við höfum fengið,“ segja þeir í viðtalinu við mbl.is. „Sérstaklega er ánægjulegt að sjá sömu andlitin aftur og aftur. Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að fólk sé ánægt og vilji koma aftur. Við höfum lagt mikinn metnað í að bjóða upp á ferskan fisk, spennandi fiskrétti og vandaðar sælkeravörur. Það er virkilega ánægjulegt að finna fyrir því trausti sem viðskiptavinirnir sýna okkur,“ segja þeir.
Fram kemur í viðtalinu við mbl.is að á næstu dögum munu jólavörur bætast við úrvalið, meðal annars reyktur og grafinn lax, sósur og jólasíld sem fékk sérlega góðar viðtökur fyrir jólin í fyrra. Þá verður einnig boðið upp á humar og humarsúpu.
Grafarvogur.net óskar þeim félögum innilega til hamingju með eins árs afmæli Öldunnar.
- JGH

Til hamingju með afmælið. Páll Fannar Pálsson og Haraldur Geir Hafsteinsson, eigendur Öldunnar. (Mynd aðsend).

