Margir hafa sett hjarta við þessa sögu. Hver skildi „þau“ eftir úti í geymslu í Grafarvogi??

17. september 2026

Sagan snertir alla; hún er mannleg, áhrifarík, átakanleg en jafnframt skemmtileg og dularfull - og margir hafa merkt hjarta við hana á FB.


Hún birtist í nokkrum brotum á FB-síðunni Íbúar í Grafarvogi þegar Thelma Björk Ottesen í Vættarborgum 3 spyr hvort einhver þekki þetta fólk.


„Við vorum að taka við íbúð hér í Grafarvogi og fundum þessar tvær brúðkaupsmyndir aftast í efstu hillu í skáp í útigeymslu. Ef einhver þekkir til þessa ágæta fólks má endilega láta þau vita af myndunum, ef þau vilja nálgast þær til okkar þá er það meira en velkomið.“


Laufey Gísladóttir, íbúi í Keflavík, svarar í athugasemdakerfinu og segist vera á brúðkaupsmyndinni til vinstri ásamt eiginmanni sínum heitnum Sigfúsi sem látist hafi fyrir þremur árum. (Sigfús B. Yngvason).


Laufey skrifar: „Við höfum aldrei búið í Vættaborgum en Sigurgeir Gíslason bróðir og Ísabella Theodórsdóttir  mágkona bjuggu þar fyrir, jeminn, örugglega meira en áratug. Eða hvenær var það? Þau bjuggu ekki lengi þarna en voru á mörgum stöðum í mismunandi leiguhúsnæði eftir að þau komu heim úr námi - sem var í hruninu „by the way“ - og engin leið var fyrir unga námsmenn að kaupa strax.“


Laufey bætir svo við með broskarli: „Þau fá orð i eyra fyrir að skilja okkur eftir þarna. Við Sigfús giftum okkur 1989, ég rétt að verða 19 ára og hann 26 ára, enda ungt fólk á þessari mynd. Náðum að vera gift í 34 ár. Sigfús minn lést fyrir tæpum 3 árum, kannski er hann bara að minna á sig - væri það ekki bara notalegt: „Laufey mín, ég er að fylgjast með að þér líði vel.““


Við þennan lestur komast lesendur svolítið við, eðlilega. Fallegt.

Brúðhjónin Laufey Gísladóttir og Sigfús B. Yngvason. „Sigfús minn lést fyrir tæpum 3 árum, kannski er hann bara að minna á sig - væri það ekki bara notalegt: „Laufey mín, ég er að fylgjast með að þér líði vel.““


En sagan tekur óvænta stefnu. Sigurgeir bróðir Laufeyjar kemur inn í athugasemdakerfið og segir: „Við vorum aldrei þarna megin í hverfinu og ef við hefðum átt þesssa mynd hefðum við aldrei skilið ykkur eftir.


Laufey svarar bróður sínum með þeim orðum að nú sé þetta orðið spennandi og dularfullt: „Nú fer sagan að verða meira spennandi. Really!!! Hver átti heima þarna og var með mynd af okkur???


Sigrún Erlendsdóttir kemur þá inn í athugasemdkerfið og segir: „Konan á svarthvítu myndinni heitir Hildur Dungal.“


Gurrý Matthíasdóttir bætir um betur og segir: „Halldór Þorkelsson og Hildur Dungal á myndinni í rauða rammanum.“


Fjöldi Grafarvogsbúa hefur líkað við þessa frásögn og merkt við hana með hjarta.


Enn er hún hins vegar ráðgáta, að minnsta kosti á FB. Hver var með þessar brúðkaupsmyndir og gleymdi þeim úti í geymslu?


Það er nú það. - JGH

Brúðhjónin í rauða rammanum: Halldór Þorkelsson og Hildur Dungal.

Hjartnæm ráðgáta.