„Augu og eyru götunnar“. Hildur fagnaði nágrannavörslu með íbúum Stararima
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri mætti í Stararima í Grafarvoginn í fyrrdag, miðvikudag, þegar nýju nágrannavörsluskilti var komið fyrir í Stararima í Grafarvogi.
Jafnframt kynnti borgarstjóri nýtt átak borgarinnar um nágrannavörslu. Sjá hér.
Íbúarnir sammæltust um að vera með nágrannavakt í götunni í forvarnarskyni og pöntuðu skilti sem nú er komið á sinn stað.
Þeir fjölmenntu til að fagna nýja skiltinu og verða með virka nágrannavakt í götunni sem felst meðal annars í að vera vakandi og fylgjast með grunsamlegum mannaferðum um götuna og hverfið.
Þeir verða „augu og eyru“ götunnar eins og komist er að orða um nágrannavörsluna.
Þetta er enn eitt dæmið um mikla samheldni Grafarvogsbúa.
Vel gert íbúar í Stararima!
Gott mál. - JGH

Mikil samheldni í Stararima og íbúar samþykkja að fylgjast með og vera vakandi fyrir grunsamlegum mannaferðum.

Merkið góða sem sýnir nágrannavörslu og Hildur borgarstjóri vígði í Stararima.

Fyrir þá sem ekki þekkja til í Grafarvogi þá er Stararimi einbýlishúsahverfið fyrir ofan Strandveginn, gegnt Gufunesinu.

