Sérkennileg umgengni við frískáp Rótarý við Borgó! Góð hugsun en þetta er full mikið!
Hugsunin með Frískáp Rótarýklúbbs Grafarvogs í Spönginni; rétt við Borgarholtsskóla, er mjög góð. En þetta er einum of mikið!
Það eru „of mörg göt á þessum osti“ eins og sagði í frægri auglýsingu þegar kemur að þessari umgengni.
Við fórum þarna um í gær og aftur í dag og ekki verður annað séð en einhver verslun hafi nánast notað skápinn - en þó fyrst og fremst næsta nágrenni hans - sem eins konar ruslahaug.
Svona umgengni gengur ekki upp þótt virða verði viljann og stuðninginn fyrir verkið.
Ávextir í kössum sem liggja þarna undir berum himni eins og hvert annað drasl stinga svo sannarlega í stúf.
Hér verður að gera betur!
Eða eins og Skrámur segir í bréfinu fræga: „Oh boy, oh boy, þetta er full mikið.“ - JGH

Það verður svo sem að virða viljann fyrir verkið en þetta gengur ekki upp.

Þessir ávaxtakassar stinga svo sannarlega í stúf og vekja athygli allra.

Frískápurinn er rétt við innkeyrsluna í Borgarholtsskóla.


