Grafarvogsbúarnir Sigrún Ásta í níunda sæti D-listans sem og Silja Sóley á J-lista náðu kjöri
Tveir Grafarvogsbúar náðu kjöri í borgarstjórn í gær. Það voru þær Sigrún Ásta Einarsdóttir sem skipaði 9. sæti D-listans og Silja Sóley Birgisdóttir, sem var í 1. sæti J-listans, Sósíalistaflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn vann stórsigur í kosningunum í Reykjavík og fékk 32,5% gildra atkvæða og níu borgarfulltrúa kjörna.
Sigrún Ásta hefur verið nokkuð áberandi á íbúafundum í Grafarvogi og látið mjög til sín taka á þeim fundum - og þá sérstaklega gegn þéttingu byggðar og sókn borgarinnar í græn svæði í hverfinu.
Þá náði hinn kunni rithöfundur og handboltamaður í Breiðholti, Bjarni Fritzon, inn í borgarstjórn sem áttundi maður D-listans.
Silja Sóley Birgisdóttir býr í Gufunesi og margir höfðu á orði að hún hefði staðið sig vel í kosningabaráttunni.
Mikil endurnýjun er innan borgarstjórnarinnar en 16 af 23 borgarfulltrúum í Reykjavík koma nýir inn í borgarstjórnina. - JGH

Þau koma ný inn í borgarstjórnina að þessu sinni, alls 16 af 23 manna borgarstjórn. Það er mikil endurnýjun. Sigrún Ásta efst uppi til hægri.

Sigrún Ásta Einarsdóttir lét verkin tala þegar hún stóð fyrir því að íbúar í Rimhverfi tækju málin í sínar hendur sl. sumar og gerðu það sem borgin gerði ekki; að slá stórt útivistarsvæði í Rimahverfinu rétt norðan við Rimaskóla. Málið vakti mikla athygli í fjölmiðlum.

Sigrún Ásta var í aðalhlutverki á fjölmennum mótmælafundi Grafarvogsbúa gegn þéttingu byggðar í Rimaskóla 15. maí í fyrra.

Hér situr Silja Sóley Birgisdóttir á milli þeirra Björgu Magnúsdóttur, Viðreisn, og Guðmundar Inga Þóroddssonar, Flokki fólksins, á hinum líflega kosningafundi Íbúasamtaka Grafarvogs í Skálanum í Gufnesi á dögunum.

Silja Sóley í ræðustól á fundinum í Gufunesi. Stutt fyrir hana að fara á fundinn, hún býr í Gufunesi.


