Hvert snýr Hildur sér? Verða það álitin svik ef hún velur Viðreisn? Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur njóta mests fylgis í Grafarvogi
Ýmsir velta því fyrir sér í hvora áttina Hildur Björnsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna í borginni, ætli að snúa sér við myndun nýs meirihluta? Til hægri að Miðflokknum eða til vinstri að Viðreisn en um 60% kjósenda Viðreisnar vildu fyrir kosningar að flokkurinn sneri sér að Samfylkingu, Vinstrinu, Pírötum og Sósíalistum ef hann kæmist í lykilstöðu eftir kosningar.
GRAFARVOGURINN ER STERKASTA VÍGI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur njóta mests fylgis í Grafarvogi og Grafarvogurinn er sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins í borginni skv. könnun Gallup og RÚV birti í hádeginu í gær en helmingur (tæp 50%) allra kjósenda í Grafarvogi styður Sjálfstæðisflokkinn og um 20% Miðflokkinn. Um 10% Grafarvogsbúa styðja Samfylkinguna og aðrir flokkar komast lítt á blað.
„Eftir því sem vestar dregur eykst fylgi Samfylkingarinnar og dregur úr fylgi Sjálfstæðisflokksins. Þetta sést þegar niðurstöður lokakönnunar Gallups eru brotnar niður eftir hverfum,“ sagði í frétt RÚV.
Af þessu mikla fylgi Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í Grafarvogi má sjálfsagt draga þá ályktun að Grafarvogsbúar séu hrifnastir af meirihluta og samvinnu þessara tveggja flokka enda var verulegur samhljómur með þeim í kosningabaráttunni og á fundinum í Gufunesi á dögunum.
SVIK AÐ VELJA VIÐREISN Í STÖÐUNNI?
Hildur Björnsdóttir hefur sagt í viðtölum í dag að tveir kostir séu augljósastir í stöðunni; meirihluti með Miðflokknum (12) eða meirihluti með Viðreisn og Framsóknarflokki (12) og að henni hugnist báðir kostir.
Það er þetta útspil Hildar að Viðreisn sé annar tveggja „augljósra kosta í stöðunni“ sem ýmsir staldra við.
Á nokkrum þeirra sjálfstæðismanna í Grafarvogi sem Grafarvogur.net ræddi við í dag mátti heyra að þeir teldu það svik ef Sjálfstæðisflokkurinn gengi fram hjá Miðflokknum og veldi Viðreisn.
Þeir hinir sömu telja ennfremur að ESB-umræðan og kosningarnar í ágúst eigi sömuleiðis eftir að blandast inn í málið. ESB-flokkurinn Viðreisn var stofnaður til að vinna því máli brautargengi á meðan Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur eru harðir ESB-andstæðingar?

Hildur Björnsdóttir og Ari Edwald sátu hlið við hlið á kosningafundi Íbúasamtaka Grafarvogs í Gufunesi á dögunum. Verða þau samherjar næstu fjögur árin í borgarstjórn eða snýr Hildur sér að Viðreisn og Framsóknarflokki?
Þá er það rifjað upp að Viðreisn viðhélt völdum Samfylkingar og valdi samstarf við Dag B. Eggertsson í tveimur síðustu kosningum - og myndaði raunar bandalag við Samfylkingu eftir síðustu kosningar um að útiloka Sjálfstæðisflokkinn.
Á það er líka bent að Viðreisn sé í ríkisstjórn með Samfylkingu og Flokki fólksins og að sú stjórn hafi á sér sterkan vinstri blæ og að andúðar gæti af hálfu formanns Viðreisnar í garð Sjálfstæðisflokksins.
Í Kappræðunum á Sýn, miðvikudagskvöldið 13. maí, (2:41:05 mín.) þegar spurt var að því hverjir vildu vinna saman eftir kosningar sagði Einar Þorsteinsson, Framsóknarflokki: Af hverju geta menn ekki verið hreinskilnir í þessu?
Hildur greip þá fram í og svaraði Einari með þessum orðum: „Ég vil helst mynda meirihluta með samsuðu af ykkur þremur, Framsóknarflokki, Miðflokki og Viðreisn, einhverja samsuðu af þessu, það er okkar fyrsti kostur.“

Frá Kappræðum Sýnar sl. miðvikudagskvöld. Já eða nei? Er það ekki gamalt Júróvisjónlag?
Þannig að Hildur nefndi Viðreisn í Kappræðunum á Sýn enda virtist Viðreisn þá vera í lykilstöðu varðandi nýjan meirihluta í borginni, skv. könnunum.
En svo var kosið í gær og Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur fengu það mikið fylgi að Viðreisn er ekki lengur í lykilstöðu við myndun nýs meirihluta heldur duga fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Miðflokks.
Þrír borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins yfirgáfu flokkinn í aðdraganda kosninganna eða eftir að þeim var ekki stillt upp á listanum og gengu í Miðflokkinn. Væntanlega munu þeir ekki fá hlutverk komi til myndun nýs meirihluta flokkanna.
Og svo er það Framsóknarflokkurinn. Kannski verður honum kippt með í partýið í meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks - og þó; en hver veit?
Einar sneri sér að Degi B. og Samfylkingu eftir síðustu kosningar og segist ekki hafa átt annan kost í stöðunni fyrst myndað var bandalag af hálfu Samfylkingar, Viðreisnar og Sósíalistaflokksins um að útiloka Sjálfstæðisflokkinn.
Vika er langur tími í pólitík og kapallinn skýrist á næstu dögum.
Útspilið er Hildar. - JGH

Það er mikill áhugi á pólitík í Grafarvogi. Tæpur helmingur Grafarvogsbúa kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Hverfið er sterkasta vígi hans í borginni.

Þessi glæra var sýnd í Kappræðunum á Sýn í síðustu viku. Um 60% kjósenda Viðreisnar vildu að Viðreisn færi í samstarf við Samfylkingu, Vinstrið, Pírata og Sósíalistaflokkinn.

Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, í ræðustól á kosningafundinum í Skálanum Gufunesi í síðustu viku. Viðreisn nýtur ekki mikils stuðnings í Grafarvogi skv. Gallup könnun.

Frá kosningafundinum í Skálanum í Gufunesi í síðustu viku. Frá vinstri: Björg Magnúsdóttir, Viðreisn, Silja Sóley Birgisdóttir, Sósíalistaflokknum, og Guðmundur Ingi Þóroddsson, Flokki fólksins.

