Næstum helmingur Grafarvogsbúa styður Sjálfstæðisflokkinn. Grafarvogur er sterkasta vígi flokksins
Hún var mjög svo athyglisverð frétt RÚV í hádeginu í gær, kjördag, þar sem sagt var frá því að Grafarvogur væri sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins í borginni og að tæpur helmingur Grafarvogsbúa, 47%, kjósi flokkinn og um 18% Miðflokkinn.
Í frétt RÚV sagði að það væri mikill munur á fylgi flokkanna í Reykjavík eftir hverfum borgarinnar.
„Í Grafarvogi nýtur Sjálfstæðisflokkurinn stuðnings 47% kjósenda, Miðflokkurinn mælist með 18% og Samfylkingin 10%. Aðrir flokkar mælast varla í hverfinu. Eftir því sem vestar dregur eykst fylgi Samfylkingarinnar og dregur úr fylgi Sjálfstæðisflokksins.
Þetta sést þegar niðurstöður lokakönnunar Gallups eru brotnar niður eftir hverfum,“ sagði í frétt RÚV.
Þá sagði ennfremur í fréttinni: „Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærsti flokkurinn í öllum hverfum borgarinnar, ef frá eru talin póstnúmer 103 og 108 – Fossvogur og Bústaðahverfi – en þar mælist Samfylkingin með 28% en Sjálfstæðisflokkur 23%.
Í miðbæ Reykjavíkur og Vesturbænum, póstnúmerum 101, 102 og 107, fær Sjálfstæðisflokkurinn 28%, Samfylkingin 25%, Vinstrið 14%, Miðflokkur 7%, Viðreisn 9% og Sósíalistaflokkurinn 9%.

Grafarvogsbúar eru miklir áhugamenn um pólitík. Frá kosningafundi Íbúasamtaka Grafarvogs í Skálanum í Gufunesi í síðustu viku.


