Stórkostlegir tónleikar í kirkjunni í kvöld til minningar um þau séra Vigfús og Elínu
Kirkjan ómaði öll af gleði, hátíðleika, háum sem lágum tónum og af slíku lófaklappi að lengi verður í minnum haft.
Stórkostlegir tónleikar til minningar um þau séra Vigfús Þór Árnason og Elínu Pálsdóttur.
Stórstjörnurnar Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, Gissur Páll Gissurarson, Jóhann Friðgeir Valdirmarsson og Óskar Pétursson fóru á kostum sem og kórarnir þrír sem komu fram; Frímúrarakórinn, Kór Grafarvogskirkju og Vox Populi.
Tónleikarnir voru mjög vel sóttir og kynnir var séra Sigurður Arnarson.
Allur ágóði af tónleikunum rennur til nýstofnaðs Hollvinasjóðs Grafarvogskirkju.
Ógleymanleg kvöldstund - og andi þeirra hjóna sveif svo sannarlega yfir vötnum.
Glæsilegt.
- JGH

Hin stórkostlega listakona Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, kom mjög við sögu á tónleikunum í kvöld.

Tenórinn góði, Jóhann Friðgeir Valdimarsson, tekur hér lagið með Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Diddú.

Stórkostlegir listamenn, Gissur Páll Gissurarson og Sigrún Hjálmtýsdóttir.

Góður gestur að norðan, Óskar Pétursson, tenór og einn Álftagerðisbræðra úr Skagafirði.

Hún var einstök stemningin í kirkjunni í kvöld. Hér er Jónas Þórir Þórsson, stjórnandi Frímúrarakórsins.

Kór Grafarvogskirkju. Guðný Einarsdóttir organisti stjórnaði kórnum.

Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti.

Biskup Íslands og fyrrverandi sóknarprestur í Grafarvogi, Guðrún Karls Helgudóttir, sagði nokkur orð og minntist þeirra hjóna Vigfúsar og Elínar.

Hermann Stefánsson fiðluleikari.

Séra Sigurður Arnarson var kynnir á tónleikunum í kvöld og leysti það hlutverk vel af hendi eins og hans var von og vísa.

Frímúrarakórinn hóf tónleikana og gaf svo sannarlega tóninn fyrir gott kvöld.
Stórstjörnur.
Upphafslag Diddúar á tónleikunum; Þitt fyrsta bros.
Frímúrarakórinn kröftugur.
Mikil stemning komin í salinn strax eftir fyrstu tóna.
Svo snnarlega vel gert!


