Lægðin fór illa með öspina við umferðarmestu gatnamótin í Grafarvogi; við Gullinbrú

24. september 2026

Haustlægðin fór illa með öspina stóru sem stendur við fjölförnustu gatnamótin í Grafarvogi; gatnamót Gullinbrúar, Lokinhamra og Fjallkonuvegar. Þetta er það tré sem flestir Grafaravogsbúar mæna á þegar þeir aka um þessi gatnamót á hverjum degi.


Öspin brotnaði það illa að líklegast verður að fella hana. Hún er búint að standa þarna í um þrjá áratugi.


Starfsmenn borgarinnar unnu við að saga hinar brotnu greinar af og gera það sem hægt var að gera.


Það er hins vegar komið sórt appelsínugult merk á tréð; stórt X, hvað sem það táknar.


Að öllum líkindum verður tréð fellt.


Veðurhamurinn í dag var mikill og það tók hressilega í með roki og rigningu.


Gular viðvaranir giltu fyrir okkur mannfólkið en blessuð trén fara á mis við þær.


Það er ekki á allt kosið þegar Kári er í ham.  - JGH

Sögunarmeistari kominn á staðinn og sagaði brotnu greinarnar af.

Mjög svo illa farið eftir veðurhaminn. Hér er búið að saga hinar brotnu greinar af.

Tréð er ekki svipur hjá sjón og verður líklegast fellt. Búið að merkja það með stóru appelsínugulu X.

Veðurofsinn lék þetta þekkta tré í Grafarvogi illa í dag - en þúsundir Grafarvogsbúa aka fram hjá því á hverjum degi.

Þetta hefur svo sem verið kosningaár en það kemur þessu máli ekki við. Appelsínugula X-ið var málað á tréð í dag.

Öspin við gatnamót Gullinbrúar og Hamrahverfis hefur staðið þarna í að minnsta kosti þrjátíu ár og verið til yndisauka fyrir þúsundir Grafarvogsbúa á hverjum degi.